Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Síða 98
96
Árbók Háskóla íslands
lenda háskóla. í því skyni var stofnuð Alþjóða-
samskiptanefnd sem tók til starfa í október
1986. Starf nefndarinnar liefur verið margþætt:
1. Dagleg samskipti við erlenda háskóla,
svara bréfum og öðrum erindum sem berast,
taka á móti og greiða götu erlendra fræðimanna
sem hingað koma og aðstoða nemendur og
kennara Háskólans sem hyggjast dvelja við er-
lenda háskóla og vísindastofnanir.
2. Samningar við erlenda háskóla. Nefnd-
in hefur unnið að framkvæmd samninga Há-
skólans við erlenda háskóla. Starfið felst einnig
í því að halda uppi samskiptum við erlenda
háskóla, sem þegar hefur verið samið við.
Háskóli Islands hefur gert samning við all-
marga erlenda háskóla. Samningar þessir, sem
margir hverjir eru mjög ítarlegir, taka til sam-
starfs um rannsóknir, kennara- og nemenda-
skipti og framhaldsnám íslenskra stúdenta við
erlenda háskóla. Sem dæmi má nefna þátttöku
Háskóla Islands f samstarfi háskóla á norð-
urslóðum (Samarbetskommissionen för Nord-
kalottens universitet och högskolor). Að stofn-
un nefndarinnar stóðu háskólarnir í Tromsö,
Oulu, Umcá og Luleá, cn auk Háskóla íslands
taka nú einnig þátt í þessu samstarfi liáskól-
inn í Bodö, Lapplands háskóli í Rovanicmi
og Verkfræðiháskólinn í Narvik. Árlega styrk-
ir samstarfsnefndin rannsóknarsamvinnu fyrr-
greindra háskóla. Sem dæmi um samninga við
einstaka háskóla má nefna samningana við
Minnesota- og lowaháskóla í Bandaríkjunum.
Þessir háskólar hafa lagt fram umtalsverðar
upphæðir til þess að styrkja íslenska nemend-
ur, til kennaraskipta og til afmarkaðra rann-
sóknaverkefna. Nefndin hefur einnig unnið að
gerð nýrra samninga við erlenda háskóla. Nú er
unnið að samningum milli Háskóla íslands og
breskra háskóla með aðstoð breska sendihen-
ans og British Council og hefur British Council
í hyggju að veita sérstaka fjárupphæð til styrkt-
ar slíku samstarfi. Þá er unnið að samningum
við fleiri háskóla á Norðurlöndum, háskóla í
Þýskalandi, Italíu, Frakklandi og Kanada svo
dæmi séu tekin.
3. Samvinna um kennslu. Nefndin hefur unn-
ið að því að kanna möguleika á því að semja
við erlenda háskóla þannig að íslenskir nem-
endur geti stundað hluta af námi sfnu erlendis.
I þessu sambandi má nefna, að samið var við
Háskólann í West Florida í tilraunaskyni um
það að nemendur gætu lokið námi við skólann
á tilteknum sviðum, en útskrifast með lokapróf
frá Háskóla Islands. I slíkum tilfellum greiða
nemendur engin kennslugjöld önnur en innrit-
unargjöld við Háskóla Islands. I samstarfi eins
og þessu er um mikia möguleika að ræða. Með
því að sækja kennslu að hluta til erlendra skóla,
Háskóla Islands að kostnaðarlausu, og án þess
að kostnaður nemenda aukist verulega, er hægt
að gera námið hér fjölbreytilegra og gefa kost
á sérhæfingu nemenda á fleiri sviðum en Há-
skólinn getur veitt. Hér má geta þess að Al-
þjóðasamskiptanefnd beitti sér fyrir því að Há-
skóli íslands sótti um aðild að alþjóðlegum
stúdentaskiptasamtökum — ISEP (The Inter-
national Student Exchange Program).
ISEP er alþjóðlegt samstarf um nemenda-
skipti, sem komið var á laggimar í Bandarfkj-
unum árið 1979, í því skyni að koma á nem-
endaskiptum milli bandarískra háskóla annars
vegarog háskóia utan Bandaríkjanna hins veg-
ar. í dag nær þetta samskiptanet til u.þ.b. 130
háskóla víðsvegar um heim en þar af eru rúm-
lega 70 í Bandaríkjunum.
Skiptin byggjast á þeirri meginreglu að jafn-
margir einstaklingar fari utan frá hverjum há-
skóla og þeir sem komi lil dvalar, og er þeirri
stefnu fylgt að skólakostnaður sé að mestu
greiddur lil heimastofnunar. Þannig væri lil að
mynda bandarískum nemanda sem ætlaði til
ársdvalar við Háskóla Islands gert að greiða til
síns heimaskóla í Bandaríkjunum þann kostn-
að sem fælist í skólagjöldum, húsnæði og fæði,
ef nám væri stundað þar á umræddu tímabili.
Því fé væri síðan varið til að standa straum af
skólakostnaði, fæði og húsnæði íslensks nem-
anda sem í staðinn færi utan til dvalar við við-
komandi háskóla í Bandaríkjunum.
4. Dvalarstyrkir erlendis. Nefndin hefur unn-
ið að því að kynna styrki til rannsókna og náms-
dvalar, þannig að þeir kostir sem í boði eru