Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 48
42
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga.
gáfudegi, eins og nú í Svíþjóð, en þessu er breytt í
sv. frv.
2. k a p í t u 1 i. pessi kapítuli, sem í d. frv. hefir yfir-
skriftina ,,Om Værger“, en sv. fi*v. „Om förmyndare“, er
ekki í n. frv.
Með hugtakinu „Værge“ er eins og nánar sést á 3.
kap. átt við fjárráðamenn gagnstætt handhafa for-
eldravalds.
Fjárráðamenn eru sumpart lögbornir, sumpart
skipaðir. Tala lögborinna fjárráðamanna, þ. e. manna,
sem í ákveðinni röð hafa rétt og skyldu til að taka við
fjárstjórn ófjárráða manns án yfirvaldsskipunar, ef þeir
jppíyha aimenn sknyrði til þess að geta verið fjárráða-
menn, er þó miklu takmarkaðri en var eftir D. L. 3—17,
en ekki hefir nefndin treyst sér til að sleppa alveg hug-
takinu „lögborinn fjárráðamaður“, eins og gert er í ísl.
lögræðislögunum. —
Lögborinn fjárráðamaður er altaf ýmist f a ð i r
eða m ó ð i r. — Faðir er lögborinn fjárráðamaður
skilgetinna barna sinna, ef hjónin lifa saman. Sé hann
sjálfur ófjárráður eða fjárráðin af honum tekin, er
móðirin lögborin til fjárráða, þó aðeins meðan það
ástand heldst. — Sé börnunum skift niður milli foreldra,
fylgist fjárráð og foreldravald að. — Adoptant er
lögborinn fjárráðamaður adoptivbarns. Hafi annað hjóna
adopterað bam, koma reglurnar um skilgetin börn til
álita. — M ó ð i r er lögborinn fjárráðamaður óskilgetins
bams síns, nema faðirinn hafi fengið í hendur foreldra-
vald yfir barninu, því þá er hann lögborinn til fjárráða.
þótt lögborinn fjámáðamaður sé fyrir hendi, má þó
ganga fram hjá honum, ef hinn ófjárráði er kvæntur eða
giftur, og skipa maka hans.
S k i p a ð i r fjárráðamenn koma þá fyrst til greina,
að lögborins njóti eigi við, og er borgaraskylda að taka
á móti starfanum.
Fjárráðamaður skal vera lögráður, áreiðanlegur mað-
ur, sem á fyrir skuldum og álítst að vera starfinu vax-