Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 33

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 33
Mánudagurinn 11. mars 1985, dauðasveitir hægrimanna Ég svaf ekki mikið síðastliðna nótt, því ég þjáist af svefnleysi og er búinn að þjást af því síðastliðin þrjú ár. Jose gamli var nreð kaffið tilbúið þegar ég fór á fælur, ég drakk það og kvaddi hann. Ég var búinn að kaupa mér lestarmiðann til San de Juan og var að reyna að eyða tímanum þangað til lestin færi. Þess vegna fór ég að ganga og skoða hvað borgin hafði breyst. Númerslaus bíll kom akandi á móti mér og ég fann sáran sting í brjóstholinu um leið og ég heyrði byssuhvell. Ég féll í götuna, heyrði fólkið æpa, það leið löng stund þangað til sjúkrabíll- inn kom. Ég fann eilífðina koma í sjúkrabílnum, það sem eftir var dagsins lá ég í líkhúsinu með merkispjald á tánni, þetta er niðurdrepandi. Þriðjudagurinn 12. mars 1985, jarðarför mín Þetta var rétt hjá mér, dauðinn er aðeins draumur sem ég vakna af, í mínu tilfelli martröð. Jarðarförin fer að byrja. 31

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.