Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 28

Stúdentablaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 28
fannst honum þægilegast að éta í einrúmi, svo til þess að losna við barnið stakk hann upp á leik. Hann sagði: „Bráðum greinist vegurinn í tvennt. Þú skalt ganga leiðina beinu og breiðu, en ég þá mjóu og krókóttu. Það okkar sem verður á undan skal útbúa máltíð og velja handa sjálfu sér bestu bitana, en geyma afganginn handa hinu.“ Að svo mæltu þaut úlfurinn af stað og þegar hann koni að vegamótunum valdi hann sér leiðina mjóu og krókóttu en barnið tölti í rólegheitum eftir veginum beina og breiða. Ulfurinn var ekki lengi að húsi ömmunnar. Hann barði hvorki að dyr- um né kynnti sig, heldur gekk hann rakleiðis inn og beit gömlu konuna á háls. Því næst nagaði hann af henni höfuðið og setti það á disk sem máltíð handa barninu, dúkaði borðið og skreið síðan upp í rúm með skrokk ömmunnar í kjaftinum. Þegar úlfurinn hafði japlað á ólseigu kjötinu, sleikt í sig þunnt, salt blóðið og brutt stökk bragðvond bein ömmunnar, ætlaði hann að hafa sig á brott. Því þótt hann væri ekki hungraður lengur vissi hann að hunangs- sæt lyktin af barninu hlyti að freista hans. En úlfurinn var þreyttur eftir hlaupin og magi hans úttroðinn og í stað þess að hafa sig á brott að máltíð lokinni, lagði hann sig út af í rúmið og ætlaði að liggja þar örlitla stund en koma sér svo út úr húsinu áður en barnið kæmi. Hann lagði aftur augu sín og yfir hann færðist værð. Innan skamms var hann sofnaður sem fastast. Stuttu síðar kom bamið að húsinu. Stúlkan var bæði svöng og þreytt eftir göngu sína í gegnum skóginn. Hún hlakkaði til þess að leggjast út af og sofna í rúmi ömmu sinnar eftir að hafa borðað leifamar af máltíð úlfsins. En hún vissi að hann hafði unnið veðmálið. Hún opnaði dyrnar og við henni blasti dúkað borð og höfuð ömmu hennar á hvítum diski. I rúminu lá úlfurinn og hann hraut. Litla stúlkan hló. Heimski úlfur, hugsaði hún. Heimski heimski úlfur. Hélstu að þú gætir fengið mig til að éta þennan haus. Heimski úlfur. Og hún þreif höfuð ömmu sinnar upp á gráum hárlufsunum og fleygði því í eldinn. Því næst sótti hún eldhússkæri og klippti gat á brjóst úlfsins. Hún sleit hjartað úr brjósti hans, setti grjóthnullung í stað þess og saumaði fyrir aftur með gríðarstórri nál. Úlfshjartað lá á diskinum, blóðugt og heitt. Litla stúlkan lagðist við hlið úlfsins í rúminu og lagði kollinn blíðlega 26

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.