Dýraverndarinn - 01.01.1983, Side 13

Dýraverndarinn - 01.01.1983, Side 13
Selurinn serður að blóraböggli — segir Sigrún Helgasóttir líffræðingur um ákvörðun hringormanefndar að verðlauna seladráp T LÖGUM um rannsóknir á vegum atvinnuveganna er í 17. grein kveðið á um, að Hafrannsókna- stofnun ein skuli sjá um rannsóknir á sjávardýrum. Að ráðherra skuli skipa nefnd úti í bæ til þess að hafa með hö'ndum rannsóknir á selum er hreinlega brot á þessum lögum, auk þess sem hann bætti gráu ofan á svart með því að skipa einungis hagsmunaaðila fiskiðnaðarins í nefndina. Hringormanefnd hefur borið því við, að vísindalegar rann- sóknir liggi að baki drápinu á seln- um, en fáir hafa fengið að kynna sér þessar rannsóknir, sem Erlingur Hauksson líffræðingur gerði,“ sagði Sigrún Helgadóttir, liffræð- ingur, í samtali við Mbl. en hún ásamt tveimur líffræðngum er að kynna sér rannsóknir Erlings. „Formaður Hringormanefndar er í stjórn Landverndar og vegna þessarar sérstöðu Landverndar, gat hann ekki neitað Landvernd um að komast í niðurstöður rannsókna Erlings. Því fékk Landvernd þrjá líffræðinga til þess að fara í saum- ana á þessu máli, en þeir eru auk mín Ævar Petersen og Stefán Berg- mann. Við erum að vinna að þessu nú og álit er væntanlegt. Það er mikilvægt, að annar aðili en Hring- ormanefnd túlki niðurstöður rann- sókna Erlings Haukssonar." — Hverjar eru helstu niðurstöður? „Ég tel í raun að verið sé að gera selinn að blóraböggli. Við vitum að fiskiðnaðurinn er í vanda. Þá er rokið upp til handa og fóta, smá- vandamál er blásið út og selurinn gerður að blóraböggli. Það er alls ekki sannað að hringormur hafi aukist í fiski, en svo er fullyrt. Engar eldri rannsóknir eru til um hringorm og því ekki hægt að stað- hæfa þetta. Afstaða fólks til hringorms hefur breyst mjög. Fyrir um 20 árum borð- aði fólk hringorm í fiski, en nú býð- S/grún ásamt dóttur sinni Melkorku. Þetta viðtal við Sigrúnu Helga- dóttur stjórnarmann í Landvernd birtist í Morgunblaðinu 7. janúar s.l. og fékk Dýraverndarinn góð- fúslegt leyfi Sigrúnar til að birta það. Síðustu fregnir frá Hring- ormanefnd eru þær að næsta sum- ar verður haldið áfram að greiða veiðiverðlaun fyrir seli eins og síðast liðið sumar. Eins og mönn- um mun í fersku minni voru mikil og almenn mótmæli við þessari framkvæmd mála og Hringorma- nefnd harðlega gagnrýnd. En enn virðist ekkert bíta á nefndina — ENN ER EKKI MÓTMÆLT NÓG! ur fólki við þessu. Ekki er ólíklegt að þessi breytta afstaða eigi þátt í því, að menn telja að hringormur hafi aukist í fiski. Rannsóknir skortir mjög um af- leiðingar þess að minnka selastofn- inn. Ekki hefur komið í ljós, að það hafi neitt að segja þó selum sé fækk- að. Ef áhrif eiga að vera áþreifanleg þarf að fækka sel gífurlega — sem næst útrýma. Við verðum að hafa í huga, að erlendis er mikil andstaða gegn seladrápi og öflug samtök hafa beitt sér gegn drápi á selum. Seladráp í stórum stíl hér við land gæti haft áhrif á fiskmarkaði okkar erlendis. Stórkostleg fækkun á sel yrði geysilega kostnaðarsöm — jafnvel kostnaðarsamari en að plokka hringorminn úr fiskinum. Það er alveg jafnvitlaust að ætla að skjóta sel og skjóta til að mynda máva — það hefur engin áhrif á stofnstærð. það er annað sem ræður meiru — svo sem fæðuframboð. Og þar fyrir utan — hvaða rétt höfum við til þess að strádrepa lífverur, allt að því út- rýma, okkur til framdráttar? Ég fæ ekki séð að okkur sé slíkt vald gef- ið,“ sagði Sigrún Helgadóttir. — o — 0 — o — Aðalfundur Landverndar 1982 ályktar að aðgerðum Hringorma- nefndar til fækkunar selum hér við land, skuli umsvifalaust hætt og Hringormanefnd leyst frá störfum. Þrenns konar meginrök liggja að baki ályktuninni: Hvernig stað- ið var að skipan Hringormanefnd- ar, líffræðileg rök og náttúruvernd- arsjónarmið. Fundurinn telur óeðlilegt, að sjávarútvegsráðherra skuli hafa falið nefnd skipaðri hagsmuna- aðilum i fiskiðnaði, að hafa yfir- umsjón líffræðilegra rannsókna á selum. Með þeirri skipan eru Nátt- úruverndarráð og stofnanir sem stunda rannsóknir á náttúru lands- ins, gjörsamlega sniðgengnar. Hér er um siðfræðibrot að ræða og gróf- lega gengið á verksvið rannsókna- stofnana á borð við Hafrannsókna- stofnun. Rannsóknir þær, sem fyrir liggja um samband sela og hringorma eru ófullnægjandi til að réttlæta að- gerðirnar. Þótt selum verið fækkað, er óvíst hvort hringormavandinn minnki. Samhengi hringorma- 11 L

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.