Dýraverndarinn - 01.01.1983, Síða 17

Dýraverndarinn - 01.01.1983, Síða 17
HVERSVEGNA hafa kettir og önnur dýr veiðihár? til þess að hjálpa þeim að fylgjast með því sem skeður í kringum þau. Veiðihárin eru líffæri snertingarinnar! Veiðihárin eru löng, stíf hár sem vaxa út úr húð- inni. í kringum rótina eru mjög næmar taugar. Þegar veiðihárin koma við eitt- hvað segja þessar taugar dýrunum hvað það er. Dýr eins og kanínur og dádýr virðast ekki vita af veiðihárunum sínum. Það er vegna þess að þessi dýr eru mest á ferli á daginn. Þau nota sjón sína og heyrn til þess að finna fæðu og forðast óvini. Veiðihárin hjálpa þeim dýrum mikið sem ferðast um í myrkri. En vísinda- menn vita samt enn ekki hversu mikið dýrin eru háð þessum „fálmurum“ sínum. Kötturinn notar veiði- hárin sín mikið þegar hann er á veiðum í myrkri. Þau hjálpa honum að rata rétta leið og forða honum frá að ganga á hluti. Þegar köttur stingur höfðinu inn í dimma holu eða reynir að komast í gegnum girðingu segja veiðihárin honum hvað hann hefur mikið pláss. Veiðihárin hjálpa sum- um dýrum að finna fæðu. Rostungur til dæmis, hefur mörg hundruð þykk, brodd- kend veiðihár á efri vör- inni. Niðri í dökku djúp- inu, þangað sem rostung- urinn kafar eftir skelfiski, hjálpa hin næmu veiði- hár honum að finna hina gómsætu fæðu í leðjunni. js þýddi lauslega úr ensku „Glóbjart liðast hár um kinn(< Eftirfarandi grein, hér í lauslegri þýðingu og endursögn, birtist í breska dýraverndarblaðinu LIBE- RATOR, sept./okt. 1982. Samtök þau, sem standa að útgáfu blaðs þessa einbeita sér eingöngu að verndun tilraunadýra. Aðalbar- áttumálið er afnám ,,vivisection.“ Fyrri hluti þessa samsetta orðs er af latneskri rót - ,,vivius“, sem þýðir ,,lifandi“, seinni hlutinn ,,section“, þýðir að skera, eða búta í sundur. ,,Vivisection“, að skera í sundur lifandi verur. Á síðum blaðsins gefur að líta hroll- vekjandi myndir og frásagnir af þessháttar limlestingum tilrauna- dýra. í>eir, sem mæla þessum að- förum bót, telja þær nauðsynlegar í þágu læknavísindanna. E.B. MARGIR munu kannast við háralitunarefni, sem heitir „Nice ’n Easy“, en það er víða á boðstólum í snyrtivöruverslunum hérlendis. Það er framleitt í Clairol verksmiðjunum bresku og sagt eðli- legt, auðvelt í notkun og allsendis skaðlaust. Litaúrvalið er fjölbreytt, allt frá glóbjörtum háralit barns yfir í þann hrafnsvarta, sem suð- rænar konur skarta. Framleiðend- um láðist þó að taka fram, að þessari fánýtu framleiðslu var komið á markaðinn að undan- gengnum ómannúðlegum tilraun- um á háþróuðum spendýrum. Clairol verksmiðjurnar hefðu án efa látið fylgja sögunni hvernig þeim tókst að búa til svona góða og þægilega vöru, ef engu væri að leyna og samviskan hrein. Svo kanna mætti áhrifin af „Nice ’n Easy“ litnum voru Rhesus- apar hrifnir burt úr heimkynnum sínum i frumskógunum og þeir notaðir við tilraunir. Fyrst voru þeir svæfðir og síðan reyrðir niður á bekk á rannsóknarstofu með höfuðin hangandi fram af brúninni svo hægara væri að lita á þeim hárið. Sá sem lituninaframkvæmdi var hanskaklæddur til þess að vernda hörund sitt gegn áhrifum litarefnisins. Að 20-30 mínútum liðnum var hárið skolað, þerrað með pappírsþurrku og litaða hárið rakað af. Að þessu loknu var öllum öpunum komið fyrir í stólum og þeir reyrðir niður, þannig að þeir gætu ekki snert á sér höfuðið. Hversu mikill sem sviðinn, kláðinn eða sársaukinn kann að hafa verið í hársverðinum gafst þeim engin leið til fróunar - slíkt hefði spillt til- raunastarfseminni. Þvagsýni var tekið hjá þessum dýrum með vissu millibili; varnar- lausum, bundnum föstum í stólun- um í allt að 7 daga. Er hægt að réttlæta svona með- ferð á dýrum til þess að menn geti skipt um háralit? 15

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.