Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1983, Qupperneq 31

Dýraverndarinn - 01.01.1983, Qupperneq 31
Norrænt umferðarár - réttur dýranna Árið 1983 hefur uerið ákueðið norraent umferðarár og munu fjölmiðlar halda uppi miklum áróðri I þeim tilgangi að bæta umferðina. Blaðið óskar þess að sá áróður megi verða sem áhrifa- ríkastur því slysin af völdum umferð- arinnar eru gífurleg. I þessu sambandi minnum við á rétt dýranna í umferðinni. Dýr á veg- um úti eru stórhættuleg umferðinni og hljótast mörg slys af því á hverju ári. Nú er það svo að það eru dýrin sem eiga réttinn á vegunum, efsvo má að orði komast. Sá sem ekur á dýr er skaðabótaskyldur. Það skal brýnt fyrir ökumönnum að aka varlega þar sem þeir sjá dýr við vegarbrún því aldrei er að vita upp á hverju dýrið tekur. Dýrin í umferðinni „eiga réttinn" - það slær mann sú hugsun að það sé m.a. orsök þess hve mikið er af bæði kindum og hestum við vegarbrúnir. Þess eru ófá dæmi að skepnum sé jafnvel beitt t vegkantana! Þetta er algjörlega óforsvaranlegt og mál að linni. Skepnur eiga að vera á af- girtum löndum hvort sem það er afréttur eða heimahagi. Hér með er skorað á allar sveita- stjórnir svo og bændur að girða og halda girðingum í lagi þannig að skepnur gangi aldrei lausar á þjóð- vegum landsins. leyfílegt hámark mengunar, hið svokallaða „þol“, er augljóstlega mjög gallað. Öryggið, sem það veitir, er aðeins á pappírnum og vekur hjá mönnum þá röngu hug- mynd, að fundin séu öruggtakmörk þess sem er hættulegt og að tryggt sé að ekki sé farið yfir þá markalínu. Það er raunar álit margra og stutt gildum rökum, að eitur i matvælum sé aldrei hættulaust eða æskilegt, hve lítið sem það er. Matvæla- og lyfjastofnunin finnur þolmörk eiturefna með tilraunum á dýrum og ákveður síðan leyfilegt hámark mengunar, sem er miklu minna en þarf til þess að framkalla eitur- einkenni hjá tilraunadýrunum. Þessi aðferð, sem er talin örugg, tekur ekki tillit til margra mikil- vægra staðreynda. Þegar tilrauna- dýr, sem lifir við tilbúin skilyrði og undir eftirliti, er látið éta ákveð- inn skammt af eiturefni, er það á engan hátt sambærilegt við mann, sem fær í sig skordýraeitur með ýmsu móti og án þess að nokkur leið sé að mæla það. Jafnvel þó að 7 milljónustu hlutar af DDT á salat- inu á hádegisverðarborðinu hans væri ,,hættulaust“, er annar matur á borðum, hver um sig með leyfilegt magn af DDT; auk þess er skordýra- eitrið í mat hans, eins og vér höfum áður séð, aðeins hluti og sennilega lítill hluti þess, sem hann kemst í snertingu við. Þessari samansöfn- un kemiskra efna í líkamanum úr ýmsum áttum er ekki unnt að fylgj- ast með. Það er því út í hött að tala um, að svo eða svo stór skammtur af skordýraeitri í tiltekinni fæðu- tegund sé „skaðlaus“. En hver er þá lausnin á þessum vandamálum? Eina viðhlítandi lausnin er að taka í notkun efni, sem ekki eru eins eitruð og þau sem nú eru notuð, svo að dragi úr hætt- unni af misnotkun. Slík efni eru til: pyrethrin, rotenon, ryania og fleiri efni, sem unnin eru úr jurtum. Ný- lega hefur verið framleitt gervi- pyrethrin og mun framleiðsla þess geta fullnægt eftirspurninni eftir pyrethrini. Brýn þörf er á að fræða almenning betur um þau efni, sem eru á markaðinum. Hinn almenni kaupandi er ráðalaus, þegar hann sér fyrir framan sig mikið úrval af skordýralyfjum, sveppaeitri og ill- gresiseitri og hefur engin tök á að vita hver þeirra eru hættuleg og hver tiltölulega meinlaus. Jafnframt því, sem tekin væru í notkun meinlausari eyðingarlyf, ætti að leggja kapp á að rannsaka aðferðir, sem ekki krefjast notkunar kemiskra efna. í Kaliforníu eru menn þegar farnir að reyna að hagnýta sér sjúkdóma í skordýrum, en þeim valda sýklar, sem einungis lifa í vissum tegundum skordýra, og enn víðtækari tilraunir á þessu sviði eru í undirbúningi. Margar aðrar leiðir eru til þess að halda skordýrum í skefjum, aðferðir sem ekki láta eftir sig eiturefni í mat- vælum. En engin von er til þess, að núverandi ástand, sem frá öllum sjónarmiðum verður að teljast óvið- unandi með öllu, batni til muna, fyrr en þessar aðferðir hafa verið teknar upp í stórum stíl. Eins og nú er ástatt erum vér lítið betur sett en gestir Borgianna. Verðbólgan og við Það er eUUi bara opinber þjónusta, matur og húsaleiga sem hæUUar stanslaust - prentun hæUUar líUa. Því verður DÝRAVERNDARINN að hæUUa árgjaldið þetta ár - eins og reyndar fyrri ár. Við vonum samt að ásUrifendur blaðsins bregðist eUUi en greiði árgjaldið fljótt og vel. (Það er „bara“ prentuninn sem hæUUar - DÝRAVERNDARINN er áfram unnin í sjálfboðavinnu - auðvitað!). Og Uæru lesendur - næsta ár verður DÝRAVERNDARINN 70 ára! Leggjum nú öll heilan í bleyti og veltum því fyrir oUUur hvernig við getum gert þann áfanga eftirminnilegan! js 29

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.