Dýraverndarinn - 01.01.1983, Síða 34

Dýraverndarinn - 01.01.1983, Síða 34
Ungur nemur gamall temur Árið 1894 gaf Hið íslenska þjóðvina- félag út rit sem bar heitið: Foreldrar og Börn. Uppeldisleiðarvísir, eftir Ólaf Ólafsson prest að Arnarbæli. Þar er að finna eftirfarandi klausu um ómannúðlega meðferð á dýrum. „Látið bömin aldrei horfa á grimmd- arfulla meðferð á mönnum eða skepn- um. - Slátrunaraðferðin hjer á landi er svo Ijót og grimmdarleg, sem allir vita; en hitt er þó verra, að börnum er leyft að standa yfir og horfa á, þegar kindur eru skornar á háls og smá-pínt úr þeim lífið, meðan blóðið tæmist úr þeim. Af því að þau venjast þessari óþokka- aðferð frá blautu barnsbeini, þá finnst þeim hún eðlileg, og þau hafa ekki hina minnstu meðaumkvun með skepnun- um, sem á þessa leið eru deyddar. En hver sá, er hefur litla meðaumkvun með skepnunum, er varla miskunnar- og meðaumkvuanrríkur við menn- ina.-“ Hetjan Brandur fékk verðlaun VIÐTÆK DANKAÞJÓNUSTA Útvegsbanki íslands býður alhliða bankaþjónustu og víðtækt net þjónustustöðva. Á höfuðborgarsvæðinu eru 6 útibú, auk aðalbankans og 5 útibú eru víðs vegar um land. Moskvu, 2. nóvember. AP. KÖTTURINN Brandur komst heldur betur í sviðsljósið í Sovétríkjunum fyrir skemmstu er hann bjargaði lífi fimm ára gamals drengs í bænum Tuapse við Svartahafið. Málsatvik vour þau, að drengur- inn var að leika sér við köttinn og otaði að honum lítilli trjágrein. I einni tilraun sinni rak drengurinn greinina niður í rifu á gólfi hússins. Eins og hendi væri veifað spratt það upp stór snákur og ygldi sig framan í pilt. Stjarfur af hræðslu stóð stráksi stífur augnablik, en þá kom Brandur til sögunnar. Stökk á snákinn, beit í afturenda hans og bægði honum frá drengnum. Upphófst þegar hin fjör- legasta rimma á milli þeirra. Við lætin tók strákur við sér og kallaði á foreldra sína, sem voru innan- dyra. Komu þau á vettvang og björg- uðu Brandi sem átti illilega undir högg að sækja, frá snáknum, sem síðan var aflífaður. Ekki fylgdi sögunni af hvaða teg- und snákurinn var, en þess var hins vegar getið að Brandur hefði verið verðlaunaður. Ekki var farið nánar út í þá sálma í fréttinni frá Sovétríkj- unum. Þessi frétt birtist í Morgunblaðinu I vetur. Útvegsbankinn er í samstarfi við félagssamtökin Átak. Allar sparis jóðsdeildir bankans taka við innlánsfé merktu Átaki. ÚTVECSBANKI (SLANDS Austurstræti 19 Reykjavik Sími: 17060 Telexnr. 2047 Hvenær segir íslenskur almenningur STOPP? í DV þann 19. janúar í vetur er fréttapistill frá séra Robert Jack, Tjörn, Vatnsnesi. Þar segir m.a.: Hér hefur verið, eins og annars staðar, látlaus hríð í marga daga og standa útigangshross í haga I svelti. Hafa lög landsins gleymt þessum dýrum sem voru einu sinni „þörfustu þjónar" íslendinga eða eiga þau að standa upp í kvið í köldum snjó og vera gleymd í velmegun og efnis- hyggju þjóðfélagsins? Allir vita að erfitt er að ná til hestanna í hríð, en fá allir nóg að borða þegar veðrið lægir? Bóndi sagði mér fyrir nokkru að það sé illa farið með útigangshross, víðast hvar - og þjóðin þegir. Við spyrjum: Hvenær er nóg komið? Hvenær hætta fslendigar að líða svívirðu? Hvenær verður lögum um dýravernd FRAM- FYLGT á íslandi? js 32

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.