Dýraverndarinn - 01.02.1974, Blaðsíða 28
Frá sambandsfélögum
Á aðalfundi S.D.Í. voru þau sorg-
lega fá félögin, sem sendu fulltrúa
á fundinn, eða aðeins þrjú. Engin
félög virðast vera til fyrir vestan,
norðan eða austan. — Hér á eftir
fara skýrslur félaganna:
1973
Dýraverndunarfélag Hafnfirðinga
Ársskýrsla
Félagsmenn 86.
Reynt hefur verið eftir mætti að
fara eftir einkunarorðum félagsins:
Allir jafnir. Með lipurð og sann-
girni, en þó festu hefur dýravernd-
unarmálum verið þokað áfram í
Hafnarfirði. Fylgst hefur verið með
dýrahaldi í bænum og samband
haft við fóðurskoðunarmenn. Vand-
ræði vill oft verða með dúfnahald
unglinga, sem alltaf er verið að
kvarta yfir og reynt hefur verið að
sinna því sem öðru. Aflað hefur
verið fóðurs handa fuglum á bæjar-
læknum sem og öðrum fuglum,
þegar hörkur hafa verið. Auglýst
hefur verið og framkvæmd útrým-
ing á flækingsdýrum.
Þá hefur félagið, svo sem oft áð-
ur, en það eina á s.l. ári af samtök-
unum um dýraverndunarmál, aug-
lýst í útvarpi hvatningu til fólks
um að gefa fuglunum í slæmu tíð-
arfari.
í ágúst s.l. kærði félagið með-
ferð á kind er fótbrotnað hafði, en
brotni stúfurinn hafði verið skorinn
af og kindinni síðan sleppt. Ekki
er séð fyrir endann á þessu máli
enn, sem kostað hefur mikla fyrir-
höfn og málafylgju frá hendi for-
seta félagsins.
Um þessi mál mætti hafa mun
fleiri orð, því eitt og annað kemur
upp, sem þarf að sinna, eins og
gefur að skilja, en um það skal ekki
fjölyrt hér frekar.
Dýraverndunarjélag Hajnjirðinga
Þórður Þórðarson
forseti
Sigurður Þórðarson
ritari
Þá kemur skýrsla frá Dýravernd-
unarfélagi Reykjavíkur, formaður
Marteinn Skaftfells:
Ár 1972 og 1973
Skýrsla D.R. á aðalfundi S.D.Í.
9. - 12. - 1973
1. Félagatala í árslok 72 var 191,
og nú 289.
2. Fundir á árinu 72 voru 5, auk
funda með skiptaráðanda, Unn-
steini Beck vegna erfðamáls
Fanneyjarsjóðs, sem enn er óút-
kljáð og ekki ástæða til að ræða
frekar að sinni.
3. Engin stórklögumál hafa borið
að þessi ár, sem betur fer. En
eðlilega ýmsar ýmsar kvartanir
og fyrirspurnir.
4. Aðalvandamál hér í Reykjavík,
teljum við vera veslings heim-
ilislausa köttinn. Gera þarf allt
sem unnt er til að leysa þann
vanda. - Dúfan er í rauninni
hliðstætt vandamál.
5. Útflutningur hrossa er loks
kominn í það horf, sem við
höfum frá upphafi barist fyrir.
Flugvélin hefur leyst skipið af
hólmi. En líðan hrossa erlendis
þarf að athuga. Og á síðasta að-
alfundi var samþykkt tilaga
þess efnis. Hverra upplýsinga
hefur verið aflað?
6. Ingibjörg Bjarnad., kaupkona,
Bárug. 10, arfleiddi félagið að
100 þúsund krónum, sem
komnar eru í sjóð félagsins. Að
fyrirlagi gefanda renna þær til
spítalans. Fleiri gjafir hafa bor-
ist honum. Gefendum þökkum
við.
7. Spítalamálið tel ég ekki ástæðu
til að ræða hér, þar sem um
það mun fjallað í skýrslu sam-
bandsstjórnar.
8. Samráð voru um „Dag dýr-
anna", en stj. S.D.Í. sá um fram-
kvæmdir.
9. Sólskríkjusjóður gaf út tvö kort
1972. Og nú er komin mynd,
stækkuð eftir teikningu Egg-
erts, sem gefið var út sem kort
1971.
10. Fóður hefur verið keypt, eins
og áður. í okt. var sent korn
til skóla á Vestur-, Norður- og
Austurlandi. Og hér er því í
rauninni dreift allan veturinn,
eftir því sem aðstæður leyfa.
Driffjöður í allri starfsemi
sjóðsins, er form. hans Erlingur
Þorsteinsson, læknir.
28
DÝRAVERNDARINN