Dýraverndarinn - 01.10.1974, Blaðsíða 19

Dýraverndarinn - 01.10.1974, Blaðsíða 19
en þau voru komin þangað með henni með bú sitt og börn, svo úeig og veil sem þau voru þó. Og þau voru ekki svikin í jarða- skiptunum, því þarna þrímjólkuðu þær kýrnar sínar um vorið mágkon- urnar í Valóa áður en þær gátu farið að bera í strokk vinkonur þeirra í Kra. Þetta fór alt vel og lánsamlega á stað hjá þeim mágunum og eftir tvö ár voru þeir búnir að búa svo um sig þarna sem þeim líkaði. Ærn- ar og geiturnar dreifðust upp um brekkurnar margar og vel fram- gengar og tíndu kjarngresið innan um runnana eða úr graslautunum og lynggeirunum fyrir ofan. Skógur- inn stóð þar í torfum, runnum og beltum um brekkurnar og hallana neðan undir, en á sléttun- um með ám og vötnum gengu asn- arnir, hestarnir og kýrnar júgur- miklar og latgengar. En uppi við vatnið undir brekkunni stóð bærinn myndarlegur og þrifalegur. Það var eins og allir sem þangað komu fyndu það á sér, að þar væri auðsæld og velmegun að setjast að. Bondóla kasa og óttinn á honum hjaðnaði og fjarlægðist smám sam- an úr vitund manna eins og vondur draumur, sem hættur er að hita manni og orðinn er eins og mein- laus vofa, sem er að deyja út. Þeir mágarnir voru ekki búnir að vera þarna nema tvö ár þegar ýmsir af hinum gömlu nágrönnum þeirra frá Kra fóru að búa sig undir að flytjast til þeirra og einir tveir eða þrír hefðu komið þá um vorið ef lítið atvik hefði ekki aftrað því. Ókunni maðurinn Svo stóð á, að Dadda, elsti sonur mágs Mílóhæu, sambýlismanns þeirra, kom einn dag heim frá lambánum dapur og órór og sagði, dýraverndarinn að til sín hefði komið ferðamaður og gengið með sér inn um brekk- urnar, spurt sig hvernig þeim lík- aði þarna, hvernig þeim liði og svo um hagi þeirra og ýmislegt þess- leiðis eins og menn voru vanir að gera, þangað til hann hefði alt í einu spurt sig eins og glottandi, hvernig hann héldi, að sér yrði við, ef hann fyndi einn dag, að bærinn tæki kipp með þau öll niður í jörðina nokkrar mannhæðir eða svo og sigi svo dýpra og dýpra, þangað til rétt sæist glóra í himininn upp um endalausan svartan stromp. Dadda mundi varla hverju hann hafði svarað manninum, en sagði, að sér hefði ætlað að verða illt og hann hefði fengið svo mikið ógeð á þessum manni, að hann vildi losna við hann og fara heim, en hinn hefði þá snúið við með sér og fylgt sér alla leið heim undir bæ. Hann var hvað eftir annað að ámálga þetta, og spyrja, hvort honum þætti ekki leitt að deyja svona ungum, og fleira þess háttar, og rétt þegar hann sneri frá honum, spurði hann, hvort hann hefði heyrt nefndan Bondóla kasa. Þessu ansaði Dadda ekki en stökk á spretti heim. Dadda var myndarpiltur og greindur og þá á 14. ári og trúðu allir sögu hans og létu flestir á sig fá nema Nardodd. Hún sagði, að þar væri kominn einhver öfundar- maðurinn til þess að hræða þau og börnin og skyldu þau ekkert hirða um það og vera ósmeyk og best að láta þá pilta koma heim til sín. Mílóhæa brá illa við þetta og lét þó lítið á bera og var jafnvel farið að smádraga yfir þetta hjá honum, þegar vinnupiltur hans, unglings- piltur, kom með söguna heim úr skóginum; hafði maðurinn komið þar að honum eins og út úr einum runninum og borið upp fyrir hon- um þessa sömu spurningu um strompinn. Hafði pilturinn þá sagt við hann, því hann væri að spyrja að þessu, eða hvort hann væri þess megnugur að sökkva bænum og glotti hinn við og sagði, að þetta hefði borið hér við áður og gæti vel orðið enn. Greinilegar svaraði hann því ekki, en spurði rétt á eftir pilt- inn, hvort hann hefði heyrt nefnd- an Bondóla kasa og játti pilturinn því og gretti þá hinn sig og hló kuldahlátur og gekk við það burt aftur inn í skóginn. Eftir lýsingunni var þetta sami maðurinn sem Dadda hitti, hár maður og þrekinn, miðaldra, afar dökkur í framan, stórskorinn og nefljótur og gat skotið hvítum aug- unum beint út undan sér, þegar hann glotti. Nú skall óttinn á aftur eins og gjörningabylur og varð svo þungur á, að flestum urðu næturnar til lít- illar hvfldar í bænum; varð mág- konan veik af vökum og hugraun og lauk svo, að þau hjónin fóru þaðan með börn sín og málnytu um vorið, en létu húsin standa og töluðu jtfnvel um að koma aftur. En Nardodd gerði ekki mikið úr þeirri afturkomu. Slíkar skræfur kvað hún ekki verðskulda velmegun og það yrði fram að koma sem ætlað væri, því það ætti nú fyrir þeim að liggja, aðdeyja úr dugleysi, en þeir skyldu að öðru hlæja öfundarmenn sínir heldur en því, að þeir hræddu hana og hennar fólk úr þessum stað niður í sveltið og örtröðina í Kra. „Ég þyrfti að verða fyrir hon- um, þessum kóna, sem hér er að snuðra um og hræða ykkur", sagði hún við börnin, „og vita svo hvort hann kæmi næsta daginn". Hún var svo reið bróður sínum og mág- konu fyrir flanið, að henni varð 19

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.