Heimir : söngmálablað - 01.06.1936, Blaðsíða 24
54 Fréttir
F R É T T I R.
Aðalfundur „Sambands ís-
lenzkra karlakóra“ var hald-
inn í „Baðstofu" iðnaðar-
manna mánudaginn 29. júní.
Mættir voru, auk 5 stjórnar-
meðiima, 20 atkvæðisbærir
fulltrúar og ennfremur nokkr-
ir af söngstjórum og formönn-
um kóranna.
Formaður Sambandsins,
Salómon Heiðar, gerði grein
fyrir starfi Sambandsins á
liðnu ári. Taldi hann útgáfu
söngmálablaðsins „Heimi“ til
hins merkasta er gerst hefði,
og minntist sérstaklega á
hversu mikill fengur væri í
því, að hverju hef'ti fylgdi
jafnan eitt karlakórslag. Nokk-
ur vonbrigði taldi hann stjórn
Sambandsins hafa orðið fyrir
hvað snertir útbreiðslu blaðs-
ins, sérstaklega meðal söng-
manna kóranna. Síðan skýrði
form. frá umsókn um hækkun
á styrk Sambandsins til síðasta
Alþingis. Var umsókninni ekki
veitt áheyrn að þessu sinni.
Samningur við Sig. Birkis,
söngkennara var framlengdur
um eitt ár.
Stofnað var heiðursmerki
Sambandins og hafa þessir
menn verið sæmdir því: Sig-
fús Einarsson, tónskáld, söng-
stjórarnir Jón Halldórsson og
Sig. Þórðarson. Ennfremur
hafa þeir Hugo Alfvén, tón-
skáld, og Lúbeck, landshöfð-
ingi, báðir sænskir, verið
sæmdir heiðursmerkinu.
Sendur var fulltrúi á söng-
liátíð, er haldin var i Gauta-
borg og tókst Sig. Skúlason
magister þá ferð á hendur, en
stjórn Sambandsins hafði bor-
ist boðsbréf frá „Svenska
Sángarforbundet" um að senda
íulltrúa.
Ýmsar umræður uyðu á
fundinum um útgáfu „Heimis“,
cndurskoðun laga, livort veita
skuli blönduðum kórum upp-
töku í Sambandið o. fl. og
voru nefndir skipaðar.
Salómon Heiðar baðst undan
endurkosningu sökum heilsu-
brests, og voru kosnir i stjórn
Sambandsins ólafur Pálsson,
formaður, Hallur Þorleifsson,
varaformaður, Kjartan Norð-
dahl, Björn Árnason, sr. Sig-
urgeir Sigurðsson, ísafirði,
Ingimundur Árnason, Akur-
eyri og Jón Vigfússon, Seyðis-
íirði. Varamenn voru allir
endurkosnir.
Ýmislegt fleira bar á góma á
fundinum sem ekki þykir
ástæða til að fjölyrða um hér
i blaðinu.
*
TÓNLEIKAR
í REYKJAVÍK.
Karlakór K. F. U. M. átti 20
ára starfsafmæli í vetur og hélt
samsöng 1. apríl. Jón Halldórs-
son, söngstjóri kórsins, er öt-
ull og vandvirkur og komu
þessir kostir hans vel i ljós á
þessum samsöng, sem var að