Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Page 12

Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Page 12
10 ú T V A R P S A R B ó K varpsráðsins. Eins og því er nú háttað, hefir út- varpsráðið aðeins umsjón með svonefndri menning- arhlið útvarpsins, en það er ekki heppilegt. Útvarps- ráðið á að hafa yfirumsjón með útvarpinu í heild sinni; þá fyrst má vænta, að bót fáist á því, sem nú er áfátt. Þá yrði líklega einnig- komist hjá vandræð- um eins og þeim, sem nú er altalað að sæki að út- varpinu, sem sje, að útvarpsstjóri og formaður út- varpsráðsins sjeu að kæra hvor annan fyrir ríkis- stjórninni. Má nærri geta, að slíkt er ekki gott fyrir unga stofnun, eins ög ríkisútvarpið, og er vonandi að ríkisstjórninni takist að koma sættum þar á, ella er hætt við að starfsemi stofnunarinnar bíði stór- skaða af, bæði inn á við og út á við. Þegar fundið er að dagskránni, er því vanalega borið við, að fje sje eigi fyrir hendi, til þess að auka hana eða gera hana fjölskrúðugri. Bent hefir verið á hjer að framan, hvernig gera mætti hana fjöl- skrúðugri, án verulegs tilkostnaðar, en svo er víst enginn vafi á, að færa megi reksturskostnað útvarps- ins töluvert niður. Mælt er t. d., að halli sje á við- gerðarstofu útvarpsins; sje svo, ber taíarlaust að leggja hana niður. Eins mætti sennilega leggja frjettastofu útvarpsins niður, og hefja í þess stað samvinnu við frjettastofu blaðanna. Þá er víst eng- inn vafi á, að fækka mætti að mun starfsfólki á skrifstofu útvarpsins. Ætti stjórn fjelags útvarps- notenda að láta athuga, hversu mikið mætti lækka reksturskostnað útvarpsins, reyna að fá því frain- gengt, að hann yrði lækkaður, eftir því sem kleift þykir, en að það, sem við það sparaðist, gengi til þess að auka dagskrána. Mjer dettur í hug: hvernig

x

Árbók Félags útvarpsnotenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Félags útvarpsnotenda
https://timarit.is/publication/618

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.