Melkorka - 01.12.1956, Qupperneq 6
forsendu, að í venjulegri fjölskyldu séaðeins
einn, sem liafi tekjur, þ. e. húsbóndinn, og
að húsmóðirin vinni á heimilinu.“
Ádeila Jjeirra á eins við íslenzk viðhorf
og sænsk.
Vonandi verður þess ekki langt að bíða,
að breytingar verði gerðar í þá átt, að gildi
Iieimilisstarfanna komi fram í útreikningi
á framfærslukostnaði og þjóðartekjum, og
að konur verði í framkvæmd viðurkenndir
framfærendur fjölskyldu sinnar, að sínum
hluta, og komi það fram á manntölum, í
tryggingalöggjöf og í skatta- og útsvarslög-
gjöf-
Meðan verðmæti starfa ca. 1 /5 hluta þjóð-
arinnar eða næstum 1/3 hluta allra starf-
andi manna í landinu ( en það er nú viður-
kennt, að húsmæður séu starfandi menn,
enda þótt [>ær teljist framfærðar af öðrum
og það jafnvel óstarfandi mönnum), eru að
engu metin í þjóðarbúskapnum, vantar
mikið á fullt jafnrétti karla og kvenna. Þau
almennu mannréttindi, sem konur hafa
smátt og smátt fengið, eru mjög mikilsverð,
en Jrau koma ekki að fullu gagni fyrr en sú
atvinnugrein, sem llestar konur stunda, fær
þá viðurkenningu í reynd að hafa gildi fyrir
þjóðfélagið og telst ekki lengur aðeins
stunduð í „eigin þágu.“
Svafa Þórleifsdóttir sjötíu
Hæria sífellt hærra
skulu horfa þínir draumar,
hærra sífellt hærra
miði hugsjón þín og þrál
Þannig verður mér hugsað, er ég heyri
að hun Svafa sé orðin sjötug, því að ennþá
sjást engin ellimörk á störfum hennar né
hugsjónum.
Hun hefur varðveitt ceskuna í hjarta
sinu, sem sífellt horfir lrœrra, en lítur ekki
við.
Hún hefur varðveitt trú sina á mennina,
trúria á hið góða.
Réttlceti og sannleika hefur hún léð lið
sitt.
Svafa Þórleifsdóttir er fcedd 20. okt. 1886
að Skinnastað i Norður-Þingeyjarsýslu. Ung
ákvað hún að helga cesku lands síns krafta
sina.
Hún stundaði nám í kennaraskóla, og
siðan hóf hún kennslustörf.
Akranes hlaut þá gcefu að njóta krafta
hennar um. langt árahil.
Hún var skólastjóri barnaskólans i 25 ár.
Kvöldskóla fyrir unglinga starfrœkti hún, og
Iðnskóla Akraness stjórnaði hún einnig.
Það er stór hóþur ungmenna, sem Svafa
hefir leitt til manndóms og þroska, allt frá
barnœsku og fram á fullorðins ár og þœr
eru ótaldar stundmiar, sem hún varði til að
70
MELKORKA