Melkorka - 01.12.1956, Síða 7

Melkorka - 01.12.1956, Síða 7
leiðbeina og uppörfa pá, sem áfram vildu iil framhaldsnáms, og ekki hvatti hún okkur stúlkurnar siður, pví mennt'amál kvenna hefir hún alla tið st.utt. Hún var einn af stofnendum Kvenfélags Akraness og formaður þess frá upphafi og þar til hún flutti búferlum liéðan. Síðan hefur hún starfað að réttlcetis- og menningarmálum kvenna, með þá iiugsjón fyrir stafni að „Hvað er menning manna ef menntun vantar snót.“ Kœra Svafa! Hafðu hjartans þökk fyrir allt, er þú hefur verið menningu Akraness- bœjar. Ég óska þér allrar blessunar á ókomnum árum, og vona að fsland megi njóta þin sem lengst. Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi A þessum tímamótum í ævi Svöfu Þór- leifsdóttur vilja ritstjórar Melkorku taka undir kveðjur Inndsins kvenna og þakka henni samstarfið. í greininni hér að framan er sérstaklega getið þess hluta ævistarfs hennar, sem vitað hefur að uppeldi barna og unglinga. En mættum við bæta við það af fullri hógværð. íslenzkar konur eru litið þroskaðar félagslega og sér þess oft merki. Þvi Ijósara sem þetta liefur verið Svöfu en öðrum, hefur það tika verið henni því meiri þyrnir í augum, og með starfi sínu i kvenna- samtökum la?idsins hefur hún varið geysi- legum tima í þágu þess uppeldis, sem þarna skorti. Mættum við einnig þakka það. Ef þjóðfélagið væri ekki hagsmunafélag karla fyrst og fremst, væri Svafa nú við þessi timamót að leggja niður störf i einhverju æðsta embætti landsins, en vegna hins ein- sýna þjóðfélagsreksturs fá ekki einu sinni slíkar hæfileikakonur notið sín til fulls. Mikil er sú skammsýni, sem i því birtisi. Rímur og þjóðlög Eftir Drífu ViÖar Ekkert er eins fjarri okkur og gömul baðstofa, útskurður hennar sést óvíða, vefn- aður sjaldan, kveðskapur hennar heyrist hvergi í hinum háu sölum listmenningar- innar, samt var baðstofan eitt sinn okkar leikhús, Tívolí og Carnegie Hall. Eftir nokkur ár þekkir enginn þá dularfullu kennd sem fylgir góðum kveðskap, þegar hin lágreistu húsakynni hverfa fyrir mynd af glæsilegri höll þar sem búa bara kappar og fegurðargyðjur og ekkert heitir sínu rétta nafni, bragnar eru menn, auðargná stúlka, fleygiþundur flæðar elds maður, og hefur hver um sig tugi nafna til þess að klæða með ríniið, höfuðstafina og stuðl- ana. Nútímafólk skilur ekki kveðskap frek- ar en kvæðafólkið skilur söng, það verður að halda þeim tveim greinum aðskildum. Ef kvæðalag er sungið er það ekkert kvæða- lag, ef sönglag er kveðið er það ekkert söng- lag. Mörgum finnst kveðskapur vera afkára- legur og hræðilega ljótur. íslenzka tónlist eigum við samt enga aðra en þessi gömlu kvæðalög. Það hefur þurft mikið hugrekki og dirfsku til þess að halda áfram að kveða á þeim tímum, þegar nýju lögin voru að ryðja MELKORKA 71

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.