Melkorka - 01.12.1956, Page 13
INDLAND
Fyrir þúsundura ára, þegar auðu og myrkur hvíldi yfir Evrópu, var Asía
vagga menningar og framfara. Öld eftir öld blómgvuðust þar listir og há-
menning og voldug rfki risu þar upp hvert af öðru. En fyrir 500 árum
vaknaði Evrópa og teygði sig til austurs og vesturs og varð eftir því sem
tímar liðu sú heimsálfan sem náði völdum og yfirráðum í krafti auðs og
ta'kni. Var þessi þróun einskonar hringrás sem hefur nú runnið sitt skeið
og er Asfa aftur að taka menningarlega forustu?
A þessa leið farast Nehru orð í bók sinni um Indland. Og eitt er víst, að
Indland er að vakna, og ttm leið er að hefjast nýtt tímabil i sögu ind-
versku konunnar. í hinni nýju annarri fimm ára áxtlun Indlands er kon-
um ætluð stóraukin hlutdeild í viðreisnarstarfinu. Landið er auðugt og
frjósamt og þó hafa fram að þessu miljónir manna dáið hungursdauða
ár hvert. Barnadauði er mjög hár, 50—60%. í summn hóruðum Indlands
eru 80—90% af íbúunum ólæsir og óskrifandi. Tilfinnanleg vöntun er á
sjúkrahúsum, læknum og hjúkrunarkonttm. Sumstaðar
er ein hjúkrunarkona á hverja 16000.
I frelsisbaráttu þjóðarinnar á undanförnum áratugum
undan oki Englendinga, hafa indverskar konttr getið sér
mikinn orðstír og má þar fyrst nefna frú Lakshmi Pan-
dit, hina frægu systur Nehrus, forsætisráðherra landsins,
sem hefur setið þrisvar í fangelsi fyrir stjórnnrálaskoð-
anir sínar, enda nýtur hún trausts og virðingar
þjóðarinnar. Um aðra konu, Kamaladevi Chatto-
padhjaja, stcndur cinnig mikill frægðarljómi.
Hún hefur með starfi sínu átt rfkan þátt i að
skapa sögu þjóðarinnar síðustu 30 árin. Hún var
ein af stofnendum Indverska kvennasambandsins,
sem mikið hefur komið við siigu í öllum unrbóta-
málum, og er lrún talin einn aðal-kvennaleiðtog-
inn á þjóðmálasviðinu. Hún hefur einnig verið
ofsótt fyrir stjórnmálaskoðanir sínar og frelsis-
baráttu — sjálf leggur hún í ræðunr sfnum á-
herzla á, að ekkert starf geti kallazt óeigingjarnt
starf, sem ekki leggi þjáningar á hcrðar manns-
ins og krefjist fórna. í óeirðununr í ágústmánuði
1942, þar senr frelsiskröfur Indverja voru
barðar niður, fólk drepið í þúsundatali og
78 þúsundir manna settar í fangelsi, var
hún ein af þeinr senr handteknir voru og
sat þrjú ár i fangelsi. Þúsundir annarra
indverskra kvenna hafa einnig verið fang-
elsaðarfyrir þátttöku f frelsisbaráttu þjóð-
ar sinnar. Og i því viðreisnarstarfi, senr nú
er hafið með þjóðinni , mun indverska
konan áreiðanlega eiga eftir að koma enn
meir við sögu lands síns á næstu árum.
MELKORKA