Melkorka - 01.12.1956, Side 26

Melkorka - 01.12.1956, Side 26
(------------------------- Utan úr heimi _________________________y Bömin þjóðanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa sérstaka nefnd, sem hefur með höndum að hjálpa börnum heimsins, þeim er þess þarfnast. Þessi stofnun er skammstöfuð UNXCEF. Hún upplýsir, að af 900 milljónum t)arna í þessum heimi fái 2/3 hlutar (600 milljónir) ekki næga fæðu né fatnað né húsaskjól né vernd gegn sjúkdómum. Líf þeirra er því stutt, markað skorti og veikindum. Fjöldi þeirra barna, sem deyja á fyrsta ári, er allt frá 300 og niður í 50 af hverju þúsundi sem fæðist. Verður næsta heimsmót alþjóðakvenréttindafé- lagsins haldið í Aþenu? Borizt hefur tilkynning frá grfska kvenréttindafé- laginu um, að það sé reiðubúið að sjá um næsta þing alþjóðafélagsins 1958, ef innlendar og alþjóðlegar ástæð- ur leyfa (International Women’s News, júnihefti). Israel. Frú Golda Meyerson, sem áður var verkalýðsmála- ráðherra lands sins, hefur nú verið skipuð utanríkis- ráðherra. Hún hefur gegnt mörgum trúnaðarstöðum fyrir land sitt, m. a. var hún fyrsti sendiherra Israels i Moskvu. Mexiko. í júlí 1955 gengu mexíkanskar konur í fyrsta sinn að kosningaborðinu. Fundur norrænna kvenna í Finnlandi. Það hefur verið venja, að konur af Norðurlöndum hittust á þriggja ára fresti til að ræða réttindamál. Á Norðurlöndum hafa konur sama rétt og karlar — á pappirnum, en á meðan 50% kvenna en aðeins 3% karla hafa á hendi lægst launuðu störfin, er ekki talin ástæða til að hætta baráttunni fyrir jöfnum rétti kvenna við karla. Aðalvandamál kvenna á Norðurlöndum er að samræma á viðunandi hátt vinnu þeirra á heimilinu og utan þess, hvors tveggja þarfnast bæði þær og þjóð- félagið. Ákveðið var, að kvenréttindafélögin skyldu kjósa 2 konur hvert f sameiginlega nefnd, sem skyldi gera tillögur um raunhæfar aðgerðir réttindum kvenna til framdráttar. Skulu þessar raunhæfu aðgerðir snúast um eftirfarandi: 1) að ryðja úr vegi þeim hindrunum, sem enn verða á leið kvenna til að stunda starf að frjálsu vali. 2) Að skapa konum skilyrði til að svara MELKORKA kcmur út þrisvar á ári. Verð árgangsins fyrir áskrifendur er 25 krónur. í lausasölu kostar hvert hefti 10 krónur. Gjalddagi er 1. marz ár hvert. Öll bréfaviðskipti varðandi innheimtu og afgreiðslu til áskrifenda og útsölumanna utan Reykjavfkur annast Þóra Vigfúsdóttir, Þingholtsstræti 27, Reykjavik, sími 5199. Afgreiðsla fyrir Reykjavik og nágrenni er i Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustíg 21. Nokkur eintök af fyrri árgöngum ritsins eru enn fáanleg. ÚTSÖLUMENN MELKORKU Anna Sigurðardóttir, Útgarði, Eskifirði. Arnþrúður Björnsd., Heiðarv. 53, Vestm.eyjum. Auður Herlufsen, Hafnarstræti 11, ísafirði. Ester Karvelsdóttir, Ytri-Njarðvík. Gerður Sæmundsdóttir, Vinaminni Ólafsvik. Guðrún Albertsdóttir, Hverfisgötu 9, Siglufirði. Gunnar Ólafsson, skólastjóri, Norðfirði. Pála Ástvaldsdóttir, Freyjugötu 10, Sauðárkróki. Ragnliildur Halldórsdóttir, Höfn í Hornafirði. Rannvcig Björnsdóttir, Grænumýri 4, Akureyri. Rut Guðmundsdóttir, Sunnubraut 22 Akranesi. Sigríður Arnórsdóttir, Uppsölum, Húsavík. Sigríður Gisladóltir, Borg, Mýrum, Borgarfirði. Sigriður Líndal, Steinliolti, Ilalvík. Sigriður Sæland, Hverfisgötu 22, Hafnarfirði. Sigurður Árnason, verkstjóri, Hveragerði. Svandís Vilhjálmsdóttir, Eyrarvegi 5, Selfossi. Unnur Þorsteinsd., Vatnsdalshólum, Mýrdal. Þóra Stefánsdóttir, Egilsstaðaþorpi. Á ofangrcindum stöðum geta konur gerzt áskrifendur að Melkorku. PRENTSMIÐJAN HOLAR H-F V______________________________________________) því þrefalda hlutverki að vera launaður vinnukraftur, mæður og þjóðfélagsþegnar. 3) Að hefja áróður fyrir því að efla skilning almennings og stjórnarvalda á starfi kvenna og sérstöðu þeirra sem mæðra. 90 MELKORKA

x

Melkorka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.