Melkorka - 01.12.1961, Qupperneq 8

Melkorka - 01.12.1961, Qupperneq 8
myndrænu erfð sem ýmist liggur geymd eða hálf-gieymd á söfnum eða týnd og van- metin í höndum sjálfrar alþýðunnar sem skóp þau, kann þar heldur ekki að meta sín eigin verk fremur en barna sinna. Og það er varla vegna nýtni eða tryggðar, að þeir langlærðu vilja ekki tapa, vilja ekki að týnist það enn er eftir af frumstæðri al- þýðulist í löndunum. Þetta er haldreipið við móður jörð, við heilindin, við tilgerðar- leysi, björgin frá blekkingunni. Með því að stæla ferska ómynd barnakrots hafa mynd- listamenn 20. aldar skapað nýja stíla og list- fræðingar þar hvergi rekið augun í. Hitt er óvenjulegra, að menntamenn okkar taki sig af sjálfsdáðun til og búi börnum þau skilyrði, að þeirra eigið innra skapandi afl þroskist, útvegi þeim verkstæði að vinna í, gott hráefni að vinna úr og borgi börnunum svo tímakaup. Suður í Egyptalandi hefur slíkt starf ver- ið unnið í kyrrþey, þar til nú í ár að um- ferðasýning á vinnu þessara barna hefur verið á ferðalagi um borgir Evrópu og vak- ið furðu og hrifni. Þetta eru OFIN TEPPI. Margra ára tilraunastarf liggur að baki þessari dýrlegu barnavinnu. í vefnum hjá þeim blandast í mesta bróðerni frumstæði barnsins, einfaldleiki beztu alþýðulistar og nútíma formgjöf. Teppin eru um 60 á sýn- ingunni og stór, allt að tveimur og þremur MEI.KORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.