Melkorka - 01.12.1961, Page 20

Melkorka - 01.12.1961, Page 20
HUGLEIÐINGAR OG RABB UM. DAGHEIMILI BARNA Framh. af 77. blaOsíðu. við giftu konurnar, svo sem mér er frekast unnt. Mér virðist að flestir, sem til mín leita, hafi góðar og gildar ástæður til að koma börnum sínum á dagheimili. Veik- indi geta steðjað að og nær ógjörlegt reyn- ist að fá viðhlítandi heimilishjálp. Fjárhag margra er þannig farið, að nauðsynlegt er að bæði hjónin afli tekna, t. d. þegar fólk stendur í húsbyggingum. Og þá er það hús- móðirin á barnmörgu og stóru heimili, full ástæða er til að veita börnum hennar dvöl á dagheimili, að minnsta kosti tíma og tíma. Menn segja auðvitað sem svo, að þau börn eigi aðgang aðleikskólum, en húsmóðurinni sem er algerlega ofhlaðin störfum — og þær eru talsvert margar — kemur ekki að full- um notum fárra tíma leikskóladvöl fyrir börnin, það þarf að létta þeim af heimilinu megnið af deginum. Og svo eru það kon- urnar, sem hlotið hafa starfsmenntun, hafa t. d. lokið löngu og dýru námi, og vilja vit- anlega stunda það starf, sem þær hafa hlot- ið menntun til. er nokkuð vit í því þjóðfé- lagslega séð, að notfæra sér ekki slíka starfs- krafta. — Og auk þess, hafa ekki íslenzkar konur rétt til allra starfa í þjóðfélaginu, ef þær á annað borð hafa kunnáttu til starfs- ins, mér virðist það einmitt vera eitt af verk- efnum dagheimila í nútíma þjóðfélagi að gera konum kleift að reynast nýtur starfs- kraftur í athafnalífi þjóðarinnar, jafnframt því, sem þær rækja sitt móðurhlutverk, sagði Ida Ingólfsdóttir að lokum. Og ég er henni fyllilega sammála í því efni. Hér erum við einmitt komnar inn á mál, sem allar hugsandi konur hljóta að taka afstöðu til. Og þar sem ég veit, að mörg konan hefur rekið sig á þann tvískinnung, að þau réttindi kvenna sem skarta svo fag- urlega á pappírnum, eru í reyndinni oft og tíðum gerð ónothæf með því, að þjóðfélagið tekur ekki tillit til sérstöðu konunnar sem móður, þótti mér rétt að leita umsagnar konu, sem einmitt gegnir þessu tvískipta hlutverki — og báðum vel. Það skal tekið fram, að börn hennar njóta dagheimilis- vistar. Ég lagði fyrir hana tvær spurningar: í fyrsta lagi: Hefur þér reynst erfitt að sameina fullt starf utan heimilis, móður- lilutverkinu og hvernig telur þú, að sá vandi verði bezt leystur? I öðru lagi: Myndir þú geta sœtt þig við að láta af starfi þínu til að helga þig ein- ungis gcezlu bús og barna? Svör hennar voru þessi: Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að hvorki ég, börnin mín eða sú stofnun, sem ég vinn hjá, myndi hafa hag af því, að ég segði starfi mínu lausu til að gæta bús og barna, eins og venjulegt er í kaupstað. Auð- vitað er það æfinlega fyrsta skylda foreldr- anna — ekki aðeins móðurinnar — að tryggja vellíðan barnanna, eftir því, sem í þeirra valdi stendur, en ég fæ ekki séð, að ég gerði það á nokkurn hátt betur með því að setjast að heima. Vinnutími minn er ekki mjög langur, þó að um full störf sé að ræða. Ég geri ráð fyrir, að hóflegur vinnu- tími sé eitt af frumskilyrðum þess, að hægt sé að annast börn og heimili jafnhliða starfi utan heimilis. Hitt er annað mál á heimilum húsmæðra, sem gegna öðru starfi jafnframt, verður það síbreytilegt vandamál, eftir aldri og fjölda barnanna, hvernig öryggi þeirra og vellíðan verði tryggð. Stundum getur verið óhjá- kvæmilegt, að hafa stúlku á heimilinu, stundum er dagheimilið lang ákjósanlegasta lausnin, að viðbættum þessum góðu hjálpar höndum ömmunnar eða frænkunnar, sem svo víða finnast. En dagheimilin eru því miður alltof fá hér í bæ. Fleiri dagheimili víðsvegar um bæinn myndu leysa mikinn vanda. En oft hefur það hvarflað að mér að fleira mætti gera til að létta undir með húsmæðrum, sem starfa utan heimilis. Væri t. d. ekki 84 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.