Melkorka - 01.12.1962, Síða 7

Melkorka - 01.12.1962, Síða 7
Sovéska listakonan Maria Aleskevicuite og Mary Ladely frá Nigeriu heilsast i einu hléinu. komnir á sögulegt þing, hið fjölmennasta sem nokkru sinni hafi verið liáð í sögu frið- arhreyfingarinnar og sé það gleðilegt tákn þess að augu þjóðanna væru að opnast meir og meir fyrir því að með sameiginlegu átaki megi takast að kveða niður styrjaldaröflin og koma á algerðri afvopnun. Væri sérstak- lega mikilvægt að hér kæmu saman fulltrú- ar frá ólíkum friðarhreyfingum sem varla hefðu haft nein sambönd sín á milli áður. Prófessorinn sagði ennfremur að hér gæf- ist mönnum kostur á að ræða afvopnunar- málið frá ýmsum hliðum og bera fram ólík sjónarmið og gerði síðan nánari grein fyrir verkefnum þingsins. Menn virðast skiptast í þrjá hópa, sagði prófessor Bernal, þá sem ekki vilja trúa því að kjarnorkustyrjöld geti orðið, aðrir sem líta á liana sem óflýjanleg forlög og loks ]rá sem skoða liana raunveru- lega hættu sem þó sé unnt að koma í veg fyrir. Það er sá hópur augljóslega sem hér á fulltrúa sína, og vér vonum að oss takist að efla hann svo að hann verði því verkefni sínu vaxinn að eyða styrjaldarhættunni og tryggja afvopnun og bann við kjarnorku- vopnum. MELKORKA Það þykir ef til vill einkennilegt að velja Moskvu fyrir friðar- og afvopnunarráð- stefnu, sagði prófessorinn ennfremur, en við mundum lagna því — og ég efast ekki um að ég tali í nafni allra þeirra fulltrúa sem hér eru — ef okkur gæfist kostur á að halda eins fjölmennt þing og þetta eða jafnvel fjölmennara í New York eða Washington.“ Eftir tveggja daga almennar umræður skipti þingheimur sér í nefndir og undir- nefndir til að auðvelda starfið og ræða bet- ur einstök verkefni — og samræma ólík sjónarmið. Þessar nefndir gerðu síðan á- lyktanir sem síðar voru bornar undir þingið í lieild, og fóru þá í lok þingsins aftur fram almennar umræður, og þingið sendi frá sér sameiginlega ályktun, ávarp til allra þjóða heims, og var hún samþykkt með öllum at- kvæðum nema tveim, en sjö sátu hjá. Eitthvað á annað hundrað fulltrúa tóku til máls á hinum sameiginlegu fundum og komust því færri að en vildu, en stuðlað var að því að sem ólíkust sjónarmið kæmu fram sem síðan voru rædd í nefndum til samræm- ingar. Það er ógerningur í stuttri grein að fara náið út í einstakar ræður, en sameigin- 43

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.