Melkorka - 01.12.1962, Qupperneq 27
ætlun, t. d. fyrir mánuðinn, sem er að líða.“
„Já, mánaðaráætlanirnar eru um daglegt
líf, umhverfið, þjóðfélagið o. fl. T. d. lítur
áætlunin yfir apríl þannig út: I. vika, vorið
kemur. Þá ræðum við við börnin um vorið,
vekjum atliygli þeirra á hvernig gróðurinn
kemur smám saman, dagurinn lengist og
yfirleitt öllu sem hægt er að fræða þau á um
vorið. 2 vika, Ernst Tháhnann. Þá er fæð-
ingardagur Ernst Thálmanns, ogræðum við
við börnin um hann, líf hans og starf. 3.
vika, páskarnir. Þá fræðum við börnin um
páskana, tilefni þeirra, venjur þjóðarinnar
um páskahald o. fl. 4. vika, 1 maí. Þá tölum
við við börnin um 1. maí, undirbúum há-
tíðahöld o. m. fl. Þetta er að vísu óvenju
viðburðaríkur mánuður, mánuðirnir eru
ekki allir svona, að þeir gefi svo sjálfkrafa
tilefni til fræðslu eins og þessi, en þá verð-
um við að vera því hugmyndaríkari sjálf-
ar.“
„Hjálpið þið svo börnunum við lieima-
nárnið?"
„Já, við kennum þeim að læra, ef svo
mætti segja, útskýrum fyrir þau, hjálpum
þeim að reikna og reynum að gera námið
sem mest lifandi og glæða áhuga þeirra á
því á allan hátt.“
„Hafið þið nokkra tómstundavinnu fyrir
börnin?“
„Já, tvisvar í viku liöfum við það sem við
köllum klubbstarfsemi, þá höfum við til-
sögn í söng, dansi, bastvinnu, útsaum, livers-
konar föndri o. fl. Geta þá börnin kosið
sjálf í hverju þau vilja taka þátt, t. d. getur
barn í eitt sinn viljað taka þátt í söng, í
næsta sinn í bastvinnu o. s. frv. Á þessu er
oft hægt að finna ef eitthvert barn hefur
hæfileika í einhverja sérstaka átt. Svo er
alltaf sungið eitt eða tvö lög áður en heim
er farið á kvöldin."
Síðan sýnir frú Ingeborg mér sýnishorn
af tómstundavinnu barnanna; þar eru á-
vextir úr leir eftir yngstu börnin, körfur úr
basti og forkunnarfagrar jólastjörnur, reglu-
leg listaverk eftir þau elztu.
Spyrjandi barnsaugu.
„En á sumrin, þegar ekki er skóli, eru
þessir barnagarðar þá einnig starfræktir?"
„Þá eru börnin hér allan daginn, frá kl. 6
á morgnana til kl. 5 e. h. og fá hér allan
mat, þá er dvöl þeirra hér enn ódýrari, kost-
ar aðeins 1 mark fyrir hverjar 3 vikur. Þá
eru skipulögð ferðalög, hverskonar leikir,
farið með þau í dýragarðinn, skoðuð með
þeim söfn, þeirn eru sýndir sjónleikir, kvik-
myndir og þau æfa einnig sjónleiki sjálf og
Jrá er yfirleitt margt hægt að gera fyrir þau,
sem ekki er tími til á veturna, Jregar þau
eru við nám.“
Að síðustu l'æ ég að skoða barnagarðinn.
í einni deildinni eru 6 ára börn að hnoða
leir, í næstu deild eru 8 ára börn að reikna
heimadæmin sín, því næst er kennslukonan
í 9 ára deild að segja frá ErnstThálmann, en
þetta er einmitt hans vika. Þá eru 11 ára
börn að gera vinnubók í dýrafræði og 14
ára börnin eru að ganga frá í stofunni sinni.
7 ára deild, 10 ára deild og 12 ára deild
leika sér úti í garði sem er í kring um
skólann.
Ég þakka svo fyrir að hafa fengið að
skoða þennan merkilega stað og kveð frú
Ingeborg Nac/.insky, sem lofar mér að senda
mér sýnishorn af vinnu barnanna.
MELKORKA
65