Melkorka - 01.12.1962, Qupperneq 14

Melkorka - 01.12.1962, Qupperneq 14
Skammdegisrabb Eftir Dríju Viðar Nú tíðkast J^að mjög að unglingar gangi með öskri og ópum um götur Reykjavíkur- borgar og fleygi í fólk glerbrotum, logandi hoddum eða sprengjum og keyri á fólk á skellinöðrum sínum, sérstaklgea á þetta við ef mannfjöldi liggur við böggi eins og til dæmis verkamenn í kröfugöngu hinn fyrsta maí eða þá ættjarðar- og friðarvinir sem koma saman til Jress að biðja landi sínn og þjóð griða. Þessir unglingar eru mjög að færa sig upp á skaftið í vesturálfu. Þeir eru vestrænt fyr- irbæri. Þeir fá að fremja verknað sinn nærri óhindrað af lögreglunni. Einhversstaðár og einhverntíma verða þessir unglingar taldir til vandræðabarna. Þetta slæma uppeldi unglinga liefur mjög farið í vöxt við uppgang Vestur-Þýzkalands, Jrar sem vitað er að gömlu nazistaforingj- arnir lifa í vellystingum praktuglega. Það er auðsjáanlega uppeldið sem vestrænir vilja að koma skuli. Uppeldi lirokans og stríðs- æsinga. Uppeldi sem Nató-unnendur kenna börnum sínum. Þá gegnir öðru máli um skátana. Þar eru unglingarnir agaðir til þess að hjálpa öðrum og tugta sjálfa sig. Skátamótið á Þingvöllum í sumar leið var vel heppnað og veðurguð- irnir því Iiliðhollir. En Jrað vakti lurðu mína, hversvegna skátarnir fengu að vera á Þingvöllum. Það er nefnilega búið að gera fundarsamþykkt fyrir löngu í Þingvalla- nefnd, árið sem ungmennafélagsmótið var háð á Þingvöllum, að aldrei framar skyldi leyfa mótstað á Þingvöllum Jrar eð svo mik- ið jarðrask fylgdi svona mótuin. Skátar hefðu getað verið hvar sem var, af Jdví að 50 þeir eru nægjusamir og kunna að koma sér fyrir. Þegar ég leit í Reykjavíkurbréf Morgun- blaðsins fáum dögum eftir að mótið var sett rakst ég á setningu sem skýrði fyrir mér í einni andrá hvað þarna liafði gerzt. Reykja- víkurbréf segir nefnilega: Þingvellir hafa Jrá þýðingu í tilveru íslenzku þjóðarinnar að hún má ekki bjóða þeim annað en hið bezta. Hafi þingvallanefnd Jrótt vera jarðrask að ungmennafélagsmótinu, hvað ætli luín segi Joá um skátamótið. Skátarnir byggðu þrjár byggingar í mosaniun innan Jnjóðgarðs. Þeir veittu vatni yfir stórt svæði. Þeir tjölduðu í 10 daga og rneira til innan Jsjóðgarðs, I.eir- urnar og nágrennið eru flag eftir, enda Jrótt ekki sé annað hægt að segja en skátamótið hafi farið vel frarn og verið hið ánægjuleg- asta. Enda segir jafnvel áðurnefnt Reykja- víkurbréf: . . . megi íslenzkir foreldrar vera þess minnugir að Jreim forystumönnum sem þarna lögðu hönd að verki er treystandi fyr- ir uppeldi barna þeirra. Vitanlega er einhverjum okkar í fersku minni fundarsamþykkt Þingvallanefndar, sem skrifaði í fundargerðabók sína að aldrei framar mætti halda mót á Þingvöllum. Fyrst ekki má bjóða Þingvöllum annað en hið bezta kann að vakna sú spurning hvort Þjóðgarðurinn sé aðeins fyrir bezta fólkið eða fyrir þjóðina alla. Og ef Þing- vallanefnd er launuð nefnd — hverjir borga? Eru Jiað bara þeir beztu en ekki þjóðin öll? Um þessar mundir er alltaf verið að níða austanviðskiptin, og málgagn Jrað sem kenn- ir sig við Sjálfstæðið segir að þaðan hafi MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.