Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 5

Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 5
Sta rfið er m a rgt Aðalstjóm Vals 1997-1998. Fra vinstri Hörður Gunnarsson, Guðni Haraldsson form. Handknattleiksd. Kristjón Jónsson form. Körfuknattleiksd. ReynirVignir formaður, Ragnar Ragnarsson varaformaður, Lórus Ögmundsson gjaldkeri, Þorleifur K. Valdimarsson form. Knattspyrnud. og Helgi Benediktsson ritari. Á myndina vantar Sigfús Ólafsson Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Vals var haldinn hinn 6. júní 1997 og var dagskrá hans með hefðbundnu sniði. Á fundinum voru eftirtaldir kosnir í stjórn félagsins fyrir stjórnarárið: Reynir Vignir, formaður Ragnar Ragnarsson, varaformaður Lárus Ögmundsson, gjaldkeri Helgi Benediktsson, ritari Sigfús Ólafsson, meðstjórnandi Hörður Gunnarsson, meðstjórnandi Guðni Haraldsson, formaður hand- knattleiksdeildar Þorleifur K. Valdimarsson, formaður knattspyrnudeildar Kristjón Jónsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar. Ur stjórn gengu jpeir Arni J. Geirsson, fv. varaformaður og Brynjar Harðar- son, fv. formaður handknattleiks- deildar. Fastir fundir aðalstjórnar á stjórnar- árinu 1996-1997 voru alls 29. Sú breyting átti sér stað í kjölfar skipu- lagsbreytinga á síðasta ári að aðal- stjórn fundar nú hálfsmánaðarlega í stað vikulega áður. Á hinn bóginn hit- tist framkvæmdastjórn félagsins, þ.e. formaður ásamt for- mönnum deilda, vikulega með starfs- mönnum félagsins. Smá saman er verið að hrinda hinu nýja skipulagi, sem som- þykkt var á aðalfundi félagsins 1996 í fram- kvæmd. Almennt verð- ur ekki annað sagt en að hin stutta reynsla sem komin er á það sé mjög ásættanleg og lofi góðu um framhaldið. Fastir starfsmenn félagsins eru: Sigríður Yngvadóttir, skrifstofustjóri. Lúðvík B. Bragason, markaðs- og fjármálastjóri. Þorlákur M. Arnason, íþróttafulltrúi. Sverrir Traustason, forstöðumaður. Elín Elísabet Baldursdóttir, húsvörður. Baldur Þ. Bjarnason, húsvörður. Aðalbjörg Vigfúsdóttir, aðstoðarhús- vörður. Ýmsar fastanefndir störfuðu á árinu. Sigurður Lárus Hólm tók við for- mennsku í minjanefnd af Jafet Ólafs- syni, en aðrir í nefndarmenn eru Guð- mundur Ingimundarson, Gísli Sigurðs- son, Sigurður Ólafsson og Anton Erlendsson. Fjármál og framkvæmdir Vegna þröngrar fjárhagsstöðu aðal- stjórnar voru framkvæmdir á svæði félagsins í lágmarki. Tengibyggingin var þó máluð, gafl íþróttahússins múraður og reynt að halda fasteign- unum að öðru leyti í horfinu. A starfs- árinu tókst ekki fremur en á síðustu árum að leigja út íþróttasalina á hefðbundnum skólatíma og stendur þetta starfi aðalstjórnar mjög fyrir þrif- um. Valsblaðið Valsblaðið 48. árgangur 1996 kom út eins og venjulega í desember. Ritstjóri blaðsins var eins og oft áður Þröngt setið og horft ó beina útsendingu fró Englandi ó leik Liverpool og Man.Udt. Volsblodið 49. árgangur 1997 Utgefandi: Knattspyrnufélagið Valur. Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir að Hlíðarenda við Laufásveg. Ritnefnd: Ragnar Ragnarsson, Lárus Ögmundsson, Þorgrímur Þráinsson og Þorlákur Arnason Utlit og umbrot: Ragnar Ragnarsson. Litgreiningar: Litróf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja ehf. Bókband: Flatey hf. 5 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.