Valsblaðið - 01.05.1997, Page 6

Valsblaðið - 01.05.1997, Page 6
Þorgrímur Þráinsson og með honum í ritnefnd sátu þeir Ragnar Ragnarsson og Lárus Ogmundsson. Félagsmólaráð Helgi Benediktsson stýrði félags- málaráði á síðasta starfsári. Störf ráðsins voru með hefðbundu sniði og má þar nefna verkefni á borð við skák- og bridgekvöld, Valskórinn, getraunamorgna auk þess sem það stendur fyrir útgáfu ritlingsins Vals- frétta. Nokkur fjöldi Valsmanna mætti til að fagna íslandsmeistaratitli 2. flokks í knattspyrnu. Bikarinn var afhentur í helsta óvinavígi Valsmanna, KR vellinum. / Ymislegt Jón R. Kristjánsson, þjálfari og leik- maður meistaraflokks karla í hand- knattleik var kjörinn íþróttamaður Vals í árlegu hófi á gamlársdag sem að vanda var fjölmennt og velheppnað. Jafnframt var Jón kjörinn íþróttamaður Reykjavíkur hinn 21. febrúar 1997 og afhenti borgarstjóri honum af því tilefni veglegan verðlaunagrip í sérstöku hófi í ráðhúsi Reykjavíkur. Þréttándobrenna Þréttándabrennan var haldin á "tólft- anum" þ.e.a.s. sunnudaginn 5. jan- úar. Tókst hún með ágætum og komu þúsundir manna á svæðið á meðan á brennunni stóð. Ljóst er að brennan hefur unnið sér sess sem ein helsta skemmtun fyrir almenning og þá ekki síst fjölskyldufólk í Reykjavík þetta kvöld. Þorrablót Þorrablótið var að vanda haldið á miðjum Þorra og heppnaðist það vel enda en um 200 manns tóku þátt í því. Heiðursgestir voru borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og eiginmaður hennar Hjörleifur Sveinbjörnsson. Konukvöld Vals Konukvöld Vals var haldið í lok apríl. Veislustjórn var í höndum Óskars Bjarna Óskarsonar og Theódór Vals- sonar og þóttu þeir hafa tröllatök á samkomunni. Heiðursgestur á konu- kvöldinu var Björg Guðmundsdóttir. Sumarbúðir í borg Sumarbúðir í borg á vegum Vals voru starfræktar með venjulegu sniði s.l. sumar og hafa þær nú verið starfræk- tar óslitið í 10 ár. Aðsóknin var þokkaleg þrátt fyrir að noklc'uð hafi dregið úr stuðningi borgaryfirvalda við þetta starf. Þá stóð knattspyrnudeild félagsins fyrir tveim námskeiðum í knattspyrnuskóla Vals í byrjun sumars. Á sama hátt voru haldin hand- boltanámskeið á vegu handknattleiks- deildar og körfuboltanámskeið á vegum körfuknattleiksdeildar í ágúst. Flerrakvöld Vals Loks er að geta herrakvölds Vals sem haldið var í byrjun nóvember eins og vant er. Húsfyllir var og var veislu- stjórn í höndum Hermanns Gunnars- sonar sem leysti það verkefni af hendi af stakri snilld. Flosi Ólafsson flutti ræðu kvöldsins og telja ýmsir hana hafi verið tímamótaræðu. Flosi fór á kostum eins og fyrri daginn . Fánaborg við styttu séra Friðriks á afmælisdegi Vals 11. maí . Láttu ekki tóbaksframleiðendur plata þig upp úr skónum! TÓBAKS'MNANEFND Valsblaðið 6

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.