Valsblaðið - 01.05.1997, Side 24

Valsblaðið - 01.05.1997, Side 24
I m i n n i n g u I á ti n n o Volsmonno SIGFÚS HALLDÓRSSON fæddur 7. september 1920 látinn 21 .desember 1996 Gamall og góður Valsmaður, Sigfús Halldórsson, tónskáld og listmálari er látinn. Sigfús fæddist í Reykjavík 7. september 1920. Eins og títt er um unga drengi hneigðist hugur hans snemma að fót- bolta og aðeins átta ára gamall gekk hann í Knattspyrnufélagið Val. Til ævi- loka var hann ötull og áhugasamur Valsmaður. Sigfús lék með yngri flokk- um félagsins í fótbolta í mörg ár. M.a. tók hann þátt í eftirminnilegum vígsluleik með 3. flokki félagsins gegn Haukum er fyrsti varanlegi æfingavöllur félagsins, Haukalandsvöllur, var tekinn í notkun á árinu 1936. Völlur jbess/ var í næsta nágrenni við Hlíðarenda. Síðar fékk félagið að njóta hinna félagslegu og ekki síður listrænu hæfileika hans. Þannig lagði Sigfús sitt að mörkum við undirbúning og gerð Valsblaðsins á árunum í kringum 1960 með því að teikna forsíður þess. Einnig málaði hann fræga mynd af Albert Guðmundssyni og gaf félaginu. Ætíð var auðsótt að fá hann til þess að skemmta á árshátíðum félagsins me<3 leik og söng. Þá samdi hann m.a. baráttusöng fyrir félagið á sínum tíma. Loks má nefna að hann hefur um ára- bil verið mjög virkur í starfi í fulltrúaráði félagsins. Sigfús var sæmdur silfurmerki félagsins 1961. Hugur hans og tilfinningar í garð félagsins voru ætíð ákaflega hlýjar. Bar hann hag þess ætíð fyrir brjósti og var mjög áhugasamur um starfið sem fram fer innan vébanda þess. Hann kom gjarnan að Hlíðarenda til þess að fylgjast með félögunum í starfi og leik. Bæði sonur hans og sonarsynir hafa starfað og leikið fyrir Val og gladdi það mjög hug gamla manns- ins þegar afastrákarnir hans klæddust hinni rauðu treyju félagsins. Um leið og við Valsmenn kveðjum góðan dreng og einlægan félaga þökkum við Sigfúsi fyrir óbilandi stuð- ning og hlýju í garð félagsins og vott- um eftirlifandi eiginkonu hans, Stein- unni Jónsdóttur og börnum þeirra og öðrum aðstandendum samúð okkar. Knattspyrnufélagið Valur JÓN EIRÍKSSON fæddur 15. október 1911 látinn 29. maí 1997 Jón Eiríksson, fyrrum yfirlæknir, lést í Reykjavík hinn 29. maí s.l. Með honum horfir knattspyrnufélagið Valur á bak fyrrum formanni sínum og heið- ursfélaga. Að hans eigin ósk var hann jarðsunginn frá Friðrikskapellu að Hlíðarenda hinn 6. júní s.l. Jón, sem var jafngamall félaginu, fæddur 1911, byrjaði snemma að sparka bolta. Atta ára gekk hann í knattspyrnufélagið Hvat, sem nokkru síðar sameinaðist knattspyrnufélaginu Val. Jón lék knattspyrnu með öllum yngri flokkum hjá Val síðan nokkur ár í meistaraflokki. Hann var m.a. einn af leikmönnum meistaraflokks félags- ins, sem tryggði því sinn fyrsta Islands- meistaratitil með því að vinna KR 2-1 í eftirminnilegum úrslitaleik sumarið 1930. Með þessum sigri var brotið blað í sögu félagsins og endi bundinn á 19 ára bið þess eftir eftirstóttustu verðlaunum íslenskrar knattspyrnu. Þrátt fyrir ungan aldur og erfitt nám tók Jón að sér formennsku í félaginu áríð 1931, aðeins tvítugur að aldri. Samhliða formannsstarfinu hélt hann þó áfram að leika stöðu útherja með meistaraflokki félagsins. Arið 1934 lagði hann skóna á hilluna enda var hann þá vel á veg kominn í krefjandi læknanámi og því gáfust ekki margar stundir til knattspyrnuiðkunar. Jón lauk læknanámi við Háskóla Islands 1938 og sigldi í kjölfar þess til framhaldsnáms í Danmörku þar sem hann dvaldi allt til stríðsloka við nám og störf. Er hann kom heim aftur í lok stríðsins hóf hann auk erilsamra skyl- dustarfa aftur þátttöku í félagsmálum og þá ekki síst fyrir sitt gamla félag. Hann var t.d. fulltrúi Vals í stjórn KSI og IBR auk þess að vera einskonar trú- naðarlæknir IBR um tuttugu ára skeið. Hann var einn af stofnfélögum full- trúaráðs Vals og sat í því til dauðadags. Alla tíð og þrátt fyrir háan aldur fylgdist hann af áhuga og elju með sínu gamla félagi, sótti leiki þess ef þess var nokkur kostur og bar hag þess ætíð fyrir brjósti. Auk þess að hafa sjálfur leikið um langt skeið með meistaraflokki Vals lék Sigurður sonur Jóns um árabil með meistaraflokki Vals. Þá hafa barnabörn hans verið virkir þátttakendur í leik og starfi hjá félaginu til ómældrar ánægju fyrir gamla manninn. Jón hefur hlotið öll æðstu heiðursmerki Vals fyrir störf sín í þágu félagsins og á 80 ára afmæli beggja var hann gerður að heiðurs- félaga þess. Með Jóni er genginn sannur Vals- maður. Hann var ætíð viðmótsþýður og góður félagi, sem unni Val af heilum hug. Að leiðarlokum þakkar félagið Jóni fyrir gifturík störf í þágu félagsins og óbilandi stuðning við það alla tíð. Félagið sendir börnum hans og barnabörnum sínar innilegustu samúðarkveðjur. Knattspyrnufélagið Valur Valsblaðið 24

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.