Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 25
Gefið
•kkur
tíma
Bjarki Stefánsson blandar orkudrykki
fyrir strákana.
Bjarki Stefánsson gekk til liðs við Val í
3.flokki en hann stundaði knattspyrnu
h/á IR áður en hann kom að
Hlíðarenda. Bjarki er orðinn einn af
máttarstólpum meistaraflokks jbó að
hann sé einungis 22 ára gamall. Hann
hefur spilað fjöldan allan af land-
sleikjum með yngri liðum Islands og
það kæmi ekki á óvart ef Bjarki yrði
næsti A-landsliðsmaður Vals í
knattspyrnu.
Viðfal við Bjarka Stefánsson
hef ég haft fjóra þjálfara á síðustu
fjórum árum sem er mjög slæmt en tel
nauðsynlegt að gefa þjálfara meiri
tíma með liðið en reynslan sýnir okkur.
Hvað um framtíðina hjá félaginu?
Mér líst mjög vel á strákana sem eru
að koma upp úr 2. flokki, þeir leggja
sig 100 % fram
á æfingum
þannig að mér
finnst ákefðin á
æfingum vera
meiri en oft
áður.
En stefnir Bjarki Stefánsson á atvinnu-
mennsku á næstu árum?
Eg veit það ekki, ég lít ekki á atvinnu-
mennsku sem draumastarfið mitt. Mér
finnst mikilvægara að mennta mig
fyrst en ef mér gefst tækifæri til þá
mun ég náttúrlega skoða málin. En
fyrir mig er námið mikilvægast því
maður endist ekki í knattspyrnu nema
til 35 ára aldurs og þá er mikið eftir af
lífinu. Hins vegar er ég spenntur fyrir
því að fara í nám erlendis og spila
knattspyrnu samhliða því. Lífið
er þó meira en fótbolti!
Þannig að Bjarki
Stefánsson er ekki
fanatískur knattspyrnu-
áhugamaður sem fer
á alla knattspyrnuleiki?
Nei, ég verð nú að
viðurkenna að mér finnst
stundum skemmtilegra að horfa
á handbolta í sjónvarpinu. Eg er í fót-
bolta því mér finnst gaman að leika
knattspyrnu en ekki vegna þeirrar
umgjarðar sem fylgir knattspyrnunni.
Getur Valur orðið Islandsmeistari á
næstu 3-4 árum?
Ef við höldum þeim mannskap sem er
fyrir hendi í dag og sýnum leikmönn-
um og þjálfara þolinmæði þá mun
það takast.
Hvað viltu seg/a við
unga knattspyrnumenn í
dag?
Eg er á því að ef menn
ætla sér að ná langt í
knattspyrnu þá verða
þeir að leggja þetta fyrir sig og æfa
mjög vel. Það nægir ekki að mæta á
æfingar heldur verða menn að æfa
aukalega og þá helst að vinna á véik-
leikum sínum. En það er ekkert annað
en sú vinna sem þú leggur í íþróttina
sem skilar árangri síðar meir.
"Ég lít ekki á atvinnu-
mennsku sem drauma-
starfið mitt."
Síðustu fjögur ár hefur Valsliðið verið í
fallbaráttu, hvernig getum við snúið
þessu við?
I fyrsta lagi þarf að gefa liðinu tíma til
aðlagast. I dag er mikill fjöldi yngri
leikmanna að koma í meistaraflokkinn
en þessir leikmenn verða að fá tíma fil
aó sanna sig. Einnig höfum við misst á
hverju ári leikmenn úr byrjunarliðinu
þannig að þjálfarinn hefur alltaf þurft Bjarki ásamt leikmönnum mfl. þeim Medda, Atla, Lalla, Herði, Sigubirni,
a<3 móta nýtt lið á hverju ári. Einnig Porcha, Jóni S, Hólmsteini og ungum framtíðarleikmönnum.
25 Valsblaðið