Valsblaðið - 01.05.1997, Síða 27

Valsblaðið - 01.05.1997, Síða 27
að ég varð að senda leikmenn í skóla ef ég ætlaði ekki að missa þá í herinn. Arið 1965-1966 var byrjað að greiða leikmönnum Kunzeva og þá æfðu menn 2svar á dag. Þeir sem voru í skóla æfðu einnig 2svar á dag. Þetta var allt mjög vel skipulagt. I þá daga var það verkalýðsfélagið sem styrkti liðið, verkalýðsfélagið átti verksmiðju og leikmenn Kunzeva fengu góða vinnu þar og jafnvel íbúð í eigu verkalýðsfélagsins að auki. Er það rétt að þú hafir stofnað hand- Islandsmeistarar 2. fl. 1981, þjálfari Boris Bjarni. Á myndinni eru kunnir kappar: Geir Sveinsson leikmaður Wuppertal, Júlíus Jónasson, Guðni Bergsson knatt- spyrnumaður hjá Bolton, Jakob Sigurðsson o.fl. boltaskóla í Kunzeva? Já, ég tók krakka úr öllum skólum í Kunzeva. I fyrstu hafði ég aðeins einn hóp en síðan fengum við góðan styrk og þá fór boltinn að rúlla. Eg réð 6 þjálfara til vinnu og eftir stuttan tíma höfðum við 24 hópa fil umráða. A hverju ári nánar tiltekið 1. septem- ber í upphafi skólaárs sendi ég þjálfar- ana í alla skóla í nágrenninu. Þar fóru þeir í leikfimitíma og töluðu við íþrót- takennarann sem benti þ/álfurunum á krakka sem myndu henta vel í hand- boltann. Börnin voru á aldrinum 9-17 ára. Eg skipti síðan krökkunum í hópa en markmiðið var að ná í 100 krakka á ári hverju. Hvernig fór skólinn fram? Við skiptum krökkunum í fjóra hópa og eftir eitt ár í þrjá hópa og eftir tvö ár var aðeins einn hópur af mjög góðum einstaklingum eftir. Þetta var unnið á mjög skipulegan hátt og markmiðið var að búa til afreks- menn í handbolta. Þegar strákarnir voru orðnir 14 ára þá komu þeir 2svar á dag. Dagurinn byr- jaði hjá okkur kl 8.00 og var æft til kl. 10.00, síðan kom annar hópur kl.10.00 en hinir fóru í skólann. I hádeginu gaf ég þeim að borða og því var eftirsóknarvert að koma í skólann auk þess sem þetta var frítt fyrir foreldrana. Foreldrar voru mjög herdeildum í landinu. Við unnum herdeild frá Úkraínu í úrslitaleik. I þá daga voru 11 leikmenn í hvoru liði en það var ekki fyrr en árið 1961 sem deildarkeppnin í Rússlandi var spiluð með 7 leikmönnum í liði. Eftir að ég hætti að spila þá fékk ég mikinn áhuga á handboltaþjálfun auk þess sem ég var lærður íþróttakennari. Þannig að þetta var í beinu framhaldi af náminu þrátt fyrir að ég hefði haft knattspyrnu sem aðalval í skólanum. Hverjir höfðu mest áhrif á rússneskan handbolta í upphafi? Rússar lærðu af Úkranímönnum en þar byrjuðu menn að spila handbolta árið 1927. Ukraníumenn höfðu stofn- að sérstakan handboltaskóla og þeir- ra handboltamenning hafði mikil áhrif á Rússa enda var fyrsti landliðsþjálfari Rússlands frá Úkraínu. Hvenær hættir þú að spila handbolta sjálfur? Eg hætti að spila árið 1962. Eg spilaði í vinstra horninu og var snöggur auk jbess sem ég þótti mjög góður varnar- maður. Þó get ég ekki sagt ac5 ég hafi verið snjall leikmaður en ég var ágæ- tur. Hvenær varð uppgangur í hand- boltanum í Rússlandi? Arið 1961 var reglunum breytt þannig að einungis 7 léku í liði eins og í dag. Fyrir það var ekkert að gerast í hand- boltanum. Upp frá þessu í kringum 1964 þá var farið að greiða leikmönn- um fyrir að spila handbolta. Margir leikmenn voru í skóla auk jbess sem jbe/r spiluðu handbolta fyrir einhver laun. I Rússlandi er herskylda þannig Boris með Sovéska landsliðinu á sjöunda áratugnum. 27 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.