Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 29

Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 29
Boris lætur í sér heyra á bekknum fyrir nokkrum árum. Á myndinni sést einnig ungur drengur Brynjar Harðarson fyrrverandi form. Handknattleiksdeildar. langt í handbolta. Hins vegar dettur mér ekki í hug að nafngreina þá því ég veit að það yrði þeim ekki til góðs í framtíðinni. Ungir leikmenn eiga það til að ofmetnast mikið þegar þeim er hrósað þannig að ég læt það ógert. Það er hins vegar mjög mikilvægt að ungir leikmenn sem eru 17-18. ára gamlir fái að spila í meistaraflokki. Mér finnst ungir og efnilegir leikmenn fá tækifæri of seint. Ef við ætlum að búa til leikmenn í landliðsklassa þá verða þeir að leika í meistaraflokki þegar þeir eru mjög ungir. Sagan segir okkur þetta. Þeir leikmenn sem eru í íslenska landsliðinu í dag byr- juðu að spila f meistaraflokki á aldri- num 16-18 ára. Er Oskar Bjarni arftaki þinn hjá Val? Öskar Bjarni er mjög áhugasamur og klár þjálfari en hann er töluvert ,mýkri" maður en ég. Að mínu mati verður Valur að halda Óskari Bjarna til að búa til lið fyrir framtíðina. Ef hann er sterkur andlega þá á hann eftir að verða mjög góður þjálfari. I dag hefur hann mikinn tíma til stefnu en það er spurning hvað gerist þegar hann eignast fjölskyldu. Heldurðu að þú komir til með að flytja til Rússlands á næstu árum? Nei, ég held ég fari ekki aftur til Rúss- lands, fjölskyldan mín er hérna. Hvert á ég svo sem að fara ég er nú ekkert unglamb lengur. Eg tek aðeins eitt ár í einu, í dag er ég að þjálfa hjá Val en tíminn einn leiðir í Ijós hvar ég verð eftir tvö til þrjú ár. En það hlýtur að koma að því að ég hætti að þjálfa, það er nú bara gangur lífsins. eru þjálfaðir eins. Leikmaður sem er lítill og aumur þarf ekki sams konar þjálfun^ og sá sem er stór og sterkur! I einstaklingsþjálfuninni skoða ég leik- menn með tillifi til veikleika og styrk- leika hvers og eins. Eftir þetta reyni ég að gera honum grein fyrir hvað hann þarf að bæta og síðan vinnum við saman að því að gera leikmanninn betri. Þegar ég var að þjálfa alla yngri flokka hjá Kunzeva auk meistaraflokks þá varð þetta ferli auðveldara þarsem ég hafði mótað leikmennina og vissi að hverju ég gekk þegar leikmennirni komu upp í meistaraflokk. Einstaklingsþjálfunin er gríðarlega mikilvæg í þjálfun hópíþróttamanna og algjörlega vanmetinn. Hvað með framtíðina hjá Val? I fyrsta lagi verður Valur að gera yngri leikmönnum í handbolta kleift að æfa allt árið um kring. Það þyrfti einn- ig að vera fleiri í yngstu flokkunum hjá okkur. Það þarf að leggja meirai áher- slu á börnin og unglingana því það skilar sér seinna meir. Þá þurfa gæði þjálfunarinnar að vera góð. Við þur- fum að leggja áherslu á að ráða góða þjálfara sérstaklega barnaþjálfara en þeir eru af skornum skammti á Islandi. Einnig þurfa yngri flokkarnir að vera reknir sér þar sem formaður unglin- garáðs skipuleggur starfið líkt og er í knattspyrnunni hjá Val. Valur hefur allt sem þarf til að ná árangri en við þur- fum ac5 leggja meiri vinnu í yngri flokkana. I dag höfum við mjög sterkan 3. flokk en eru flokkarnir sem koma á eftir nægilega sterkir? Við verðum að hugsa 3-4 ár fram í tímann og það þýðir ekki að sofa á verðinum. Valur er eitt af þeim liðum sem getur ekki verslað sér leikmenn þannig að flestir meistaraflokksmenn koma úr yngri flokkum félagsins sem undirstrikar mikilvægi þess að hafa unglingastarfið í lagi. Þetta þarf ekki að vera slæmt. Það er orðin hefð hjá Val að leikmenn sem hafa verið alla tíð hjá félaginu skipa meistaraflokk og jafnvel landsliðið. Þessi staðreynd á að vera okkur hvatning til að gera ennþá betur í framtíðinni! Eru einhverjir einstakir leikmenn sem eiga eftir að ná langt hjá Val? Það eru nokkrir leikmenn hjá félaginu sem ég býst við að muni ná mjög 29 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.