Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 31

Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 31
Iþróttamaður Vals 1996 Jón Krist/ánsson handknattleiksmaður Jón Krístjánsson, þjálfari og leikmaður meistaraflokks í handknatfleik var valinn Iþróttamaður Vals árið 1996. Verðlaunafhendingin fór fram í félagsheimili Vals að Hlíðarenda á gamlársdag. Jón fékk af- henta tvo glæsilega bikara. ann- an þeirra til eignar. Jón er orðinn þrí- tugur en lætur engan bilbug á sér finna enda er hann markahæstur Valsmanna þegar 1I um- ferðum er lokið í Nissandeildinni í haust með 52 mörk. Valsliðið er í 7. sæti með 13 stig en það eru aðeins 2 stig í liðin í 2.-4. sæti. Jón Kristjánsson þjálfar nú Valsliðið þriðja árið í röð. Kom þér á óvart að þú skyldir verða valin Iþróttamaður Vals 1996? Já, ég verð nú að viðurkenna að þetta kom mér nokkuð á óvart enda hefði ég frekar búist við að fá þessa út- nefningu fyrr á mín- um keppni- sferli. Þetta kom mér því þægi- lega á óvart! Hvað finnst þér um gengi liðs- ins í vetur? Eg er ekki á n æ g ð u r með gengi liðsins í vetur en þó finnst mér liðið vera á uppleið. Við höfum lenf í vandræðum en mér finnst við hafa leyst vanda- málin nokkuð vel. Eg var ekki sáttur við að tapa út í Eyjum og svo var slæmt að tapa tveimur heimaleikjum gegn Aftureldingu og Stjörnunni. Hins Jón ásamt Halldóri Einarssyni sem gaf bikarana og Reyni Vignir formanni Vals. m'- > : —K Jón Kristjánsson íþróttamaður Vals fær sér væna sneið í tilefni dagsins. vegar þá höfum við unnið góða úti- sigra gegn FH og KA. I dag þá erum við um miðja deild en ef við hefðum sigrað IBV þá værum við í 2-4. sæti deildarinnar sem er ásættanlegt. En hvað um framtíðina? Hversu lengi ætlar þú að vera spilandi þjálfari? Eg er nú aðeins farinn að draga mig í hlé enda er gott fyrir mig sem þjálfara að fylgjast öðru hverju með frá hliðar- línunni. Framtíðin er í raun óráðin, ég tek eitt verkefni fyrir í einu en að sjálf- sögðu er ég meðvitaðar um að ég spila ekki handbolta allt mitt líf. Hvort ég einbeiti mér alfarið að þjálfun á næstu árum er ómögulegt að seg/a til um, ég skoða það einfaldlega þegar þar að kemur. ........: ~ Reykjavíkurmeistarar Mfl. karla 1997 Aftari röð frá vinstri: Guðni Haraldsson formaður HKD, Svanur Baldursson, Guðmundur Hrafnkelsson, Daníel Ragnarsson, Sigfús Sigurðsson, Júlíus Gunnarsson, Theódór Valsson, Jón Kristjánsson þjálfari, Oskar Bjarni aðstoðarþjálfari, og Reynir Vignir for- maður Vals. Fremri röð frá vinstri: Ingvar Sverrisson, Valgarð Thorodsen, Andri Jóhannsson, Sigurgeir Höskuldsson, Ingi Rafn Jónsson, Einar O. Jónsson, Davíð Ólafsson, Ingimar Jónsson, Kári M. Guðmundsson og Freyr Brynjarsson 37 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.