Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 43

Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 43
drengjaliðunum og stóð sig vel í A-mil- liriðli. Stelpurnar spiluðu mjög vel og munurinn milli Islands, Dana og Norðmanna er greinilega að minnka í kvennaboltanum. A-liðið komst í A- milliriðil en datt þar út og B-liðið stóð sig vel í B-úrslitum en var slegið út af firna sterku sænsku liði. Það vantaði Þóru Helgadóttur í A-liðið en hún er ein efnilegasta handboltastelpa á landinu og Guðbjörgu Evu, línumann, í B-liðið sem með ákveðni sinni skapar ávallt 3-5 mörk í leik fyrir hinar stelpurnar. Það var komið til Danmerkur seint á föstudegi og komið sér fyrir í skóla í Dronninglund sem er á Jótlandi. Allir leikirnir áttu að spilast á grasvöllum í kringum skólann og tveimur íþróttahúsum og þetta umhverfi líktist helst Hlíðarenda- svæðinu. Á laugardeginum var farið í vatnsgarð og nú var sólin við völd en í Svíþjóð hafði rignt þónokkuð. Sólarolían var tekin fram og flestir voru duglegir að nota frítímann við sólariðkun en enginn jafn duglegur og Styrmir seiyi keypti sér tíu olíubrúsa og hreinlega svaf úti til að ná morgun- sólinni. Hann má þó eiga það að hafa Óskar Bjarni Óskarsson yfirþjálfari sýnir varnartakta. leikgleðin úr andlitum þreyttra stúlkubarna. Kannski hafði það svona góð áhrif að vita af ströndinni og öllum þessum fínu búðum. B-liðið lenti í virkilega erfiðum riðli og mætti þar Rússum sem áttu svo eftir að spila til úrslita á mótinu. B-liðið gerði sér lítið fyrir og knúði fram jafn- Ein af 57 hálfleiksræðum Óskars Bjarna í ferðinni. sigrað "brúnkukeppnina" ásamt Markúsi. Dronninglund-Cup hófst á sunnudeginum og það vargreinilega fámennara og ekki jafn sterkt mót. Hópurinn gat því slakað meira og farið að versla. Það fannst stelpunum mjög gott því stelpum finnst nefnilega svo leiðinlegt að skoða í búðir og ver- slall Bæcf/ kvennaliðin spiluðu mun betur og það var greinilegt að trúin og sjálfstraustið var meira og nú skein tefli við þá en komst ekki áfram út af tapi gegn þýsku liði. B-liðið spilaði þó til úrslita í B-úrslitum en tapaði eftir framlengdan leik. Þeir höfðu þá á leiðinni t.d. sigrað landslið Kuwaitl! Bæði sfúlknaliðin komust í A-milliriðil en náðu ekki að komast í 8-liða úrslit. A-liðið hjá strákunum spilaði hálf illa framan af enda erfitt að halda ein- beitingu eftir sigur á Partille-Cup en loks fór "nýja mulningsvélin" í gang og strákarnir sigruðu Rússa í úrslitaleik og frændur vorir Danir áttu ekki orð yfir góðri tækni og frábærri vörn Valsmanna. I Danmörku var haldin kvöldvaka þar sem fararstjórnin kom með nokkur hálfmisheppnuð atriði en hópurinn píndi þó fram hlátur í virðin- garskyni. Hreggviður gat þó ekki flutt einþáttung sinn úr Islandsklukkunni þar sem hann sofnaði í vatns- garðinum, roðnaði örlítið og lá í skug- ga með kælikrem það sem eftir var ferðarinnar. Hann missti því af bæði Partille og Dronninglund en skemmti sér þó ágætlega. Kristinn Arnar Diego bjargaði þó kvöldvökunni með frábærri leikstjórn og bröndurum og var samhljóma álit ritnefndar að hann hafi verið maður ferðarinnar. I flugvélinni á leiðinni til Islands var mjög svo sáttur hópur á leiðinni heim. Sumir með sogbletti á hálsinum, aðrir að hugsa um danska kærustu eða Argentískan kærasta en annars var lítið um pör innan hópsins enda þetta miklir vinir. Stelpurnar voru þó dugle- gar að kíkja á strákana í sturtu en strákarnir voru ekkert fyrir svoleiðis vit- leysu. Allir voru þó sammála um að stefna til Italíu árið 1999 og vera viku í Teramo og viku á Rimini en þá verður að byrja að safna, og það strax í dag. Ritnefndin vill að lokum þakka hópnum fyrir stórkostlega ferð. Foreldrarnir Hansi og frú, Olína og Hreggviður stóðu sig mjög vél. Aðstoðarþjálfararnir Eivor, Valur, Siggi og Valur voru frábær og fórnuðu vinnu til að koma með okkur út. Það var sér- lega gaman að hitta Sigga aftur en hann er nú búsettur í Noregi ásamt fjölskyldu og vonandi styttist í að Valur fái hann aftur í sínar raðir. Við söknuðum Nonna mikið og gerum reyndar enn. Óskar yfirþjálfari var ágætur en þó dálítið þreyttur á kvöldin enda voru þetta ca. 63 leikir og hann náði 57 af þeim. 57 hálfleiksræður setja smá svip á raddböndinl! 4. flokkur karla og kvenna sem unnu 12 titla á liðnu ári (4.kv.= 6 og 4. ka. =6) vilja að lokum þakka Bjarna Ákasyni í ACO, sem er verndari '81 og '82 árganganna, en hann og HEN- SON gerðu það að verkum að Valshópurinn var langflottastur í Sví- þjóð og Danmerkur. Ritnefnd 1997 Myndir Hans Herbertsson 43 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.