Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 45
traunonefnd
?rrqur
ols
Getraunahornið í Félagsheimili Vals.
Fjölgað var í getraunanefnd Vals á
síðastliðnum vetri, Helgi Kristjánsson
og Sverrir Guðmundsson höfðu séð
um getraunastarf Vals undanfarin ár
með miklum sóma. Til að létta aðeins
á þeim var fjölgað í nefdinni og bætt-
ust í hópinn þeir Ragnar Ragnarsson,
Helgi Benediktsson, Guðmundur
Hansson og Björn Hermannson. Sett
var upp vaktafyrikomulag þannig að
hver þarf að mæta fjórða hvern laug-
ardag og hefur þetta fyrirkomulag
komið mjög vel út. Opið er á laugar-
dagsmorgnum allt árið um kring og er
opið frá 10.30 til 14.00 eða þar til
Islenskar Get-
raunir loka sinni
tölvu.
Nýlega var bætt
við tveimur tölv-
um í getrauna-
hornið okkar á
efri hæðinni. Eru
núna 3 tölvur til
taks fyrir félags-
menn Vals til að
tippa á leiki. Ein
tölvan er tengd
Getraunum í gegn-
um mótald og er hún notuð til að
senda seðla til Getrauna. Hinar 2
geta Valsmenn notað og eru í þeim
bæði getraunaforrit frá Getraunum og
Getto íslenskt forrit stærra og öflugra.
Þeir Valsmenn sem eiga tölvu heima
hjá sér, geta fengið afrit af getrau-
naforriti Islenskra getrauna og sett upp
hjá sér, tippað í rólegheitum heima og
komið með afrit af spánni í
Valsheimilið á laugardagsmorgni og
rennt því í gegnum tölvuna sem sendir
það síðan til Getrauna.
Bakararnir í Bernhöftsbakarí sjá um að
nýbakað bakkelsi sé til staðar fyrir
tippara Vals á laugardögum. Kunnum
við Jóhannesi í Bernhöftsbakarí bestu
þakkir fyrir þennan höfðingsskap. Óli
Alberts hefur síðan séð um að koma
bakkelsinu til okkar, hellt uppá könn-
una þannig að alltaf er til rjúkandi
kaffi og með því á laugardags-
morgnum í Valsheimilinu.
Valsmenn hvernig væri nú að fjöl-
menna í morgunkaffi í Valsheimi/ið
á nýju ári.
Sala Vals á getraunaseðlum hefur
verið mjög öflug fjáröflun innan
félagsins. En betur má ef duga skal.
Salan á síðasta ári var um 11 % af heild-
arveltu Islenskra getrauna og vorum
við Valsmenn hæstir, en við getum
örugglega gert mikið betur og aukið
tekjur félagsins enn meira. Til þess að
það megi takast væri æskilegt að allir
sannir Valsmenn fengju sér getrauna-
seðil og merktu hann 101, eða vera
með í Húspotti Vals.
Ólafur Albertsson hefur séð um að
Valsmenn fói kaffi og með því
Knattspyrnufélagið
V A L U R
http://www.toto.is/felog/valur/
45 Valsblaðið