Valsblaðið - 01.05.1997, Síða 47
Qojjrnói
Sigurvegarinn Styrmir Örn og
Elinborg sem varð í öðru sæti,
verðlaunabikarinn í forgrunn.
Sjálfsagt hafa ýmsir tekið eftir því að
áhugi margra Valsmanna á golfi er
óvenju mikill. Einkum á þetta við þá
Valsmenn af báðum kynjum, sem
farnir eru að reskjast og hættir eru
keppni fyrir hönd félagsins. Einnig má
finna áhugasama
golfara í röðum
hinna yngri sem
enn eru á fullu í leik
og keppni á vegum
félagsins. Frægasta
dæmið um áhuga-
sama golfara í
röðum Valsara er
eflaust hinn sam-
henti hópur hand-
boltamanna, sem
gengur undir heit-
inu Mulningsvélin
og fjallað er um á
öðrum stað hér í blaðinu. Eins má til
gamans nefna að fjórir af níu manna
aðalstjórn eru með lægri forgjöf en 20
og að tveir þeirra hafa síðustu árum
farið holu í höggi. Þeir sem þessi afrek
hafa unnið eru Reynir Vignir, formaður
félagsins og Helgi Benediktsson, ritari
þess.
I Ijósi þessa mikla áhuga hefur um
margra ára skeið verið
haldið sérstakt golfmót
Vals á hverju sumri.
Keppt er um mjög vegle-
gan bikar, sem Garðar
Kjartansson gaf á sínum
tíma í minningu bróður-
sonar síns, Jóhanns
Sebastína Einarssonar,
sem lést aðeins tólf ára gamall úr
krabbameini. Jóhann var sonur Einars
Kjartanssonar, sem um árabil lék með
yngri flokkum Vals við góðan orðstír.
Einar hefur um árabil verið búsettur
ásamt fjölskyldu sinni í Frakklandi.
I ár var golfmót Vals haldið í ágúst á
hinum nýja og glæsilega velli
Golfklúbbs Oddfellowa í Urriðavatns-
dölum. Veðrið lék við þátttakendur í
mótinu, sem voru margir, af báðum
kynjum og á öllum aldri. Sigur úr
býtum bar hinn ungi og bráðefnilegi
Styrmir Örn Hansson, en hann hefur
og er einnig að gera garðinn frægan
með yngri flokkum félagsins í hand-
bolta. I öðru og þriðja sæti urðu
"gömlu" handboltakempurnar Elínborg
Kristjánsdóttir og Bjarni Jónsson. Allur
undirbúningur fyrir mótið og stjórn
þess var í höndum Gunnars
Kristjánssonar og Garðars Kjartans-
sonar og nutu þeir að vanda dyggs
stuðnings Halldórs Einarssonar við
mótsstjórnina. Tókst mótið í alla staði
mjög vel. I mótslok var öllum þátttak-
endum boðið í höfðinglega garðveislu
á heimili Gunnars en þar var fyrir
Stefán Halldórsson, sem grillaði fyrir
mannskapinn ókjörin öll af gómsætu
lambakjöti. Hafi þeir félagar, sem
undirbjuggu mótið og stóðu að veislu
og velgjörðum í mótslok hinar bestu
þakkir fyrir sinn þátt í skemmtilegum
og eftirminnilegum degi.
Þátttakendur í garðveislu á heimili Gunnars í mótslok.
Munið flugeldasölu Vals
að Hlíðarenda
Opið:
Mánudag 29. des. lOtil 22
Þriðjudag 30. deslOtil 22
Gamlársdag 31. des. lOtil 16
Anna Vignir
Á síðasta ársþingi KSI fengu Valsmenn
afhentan kvennabikar KSI fyrir öflugt
og uppbyggjandi starf í yngri flokkum
kvenna. A þessu þingi var einnig
fyrsta konan kosin í stjórn KSI var það
Valskonan Anna Vignir og óskar
Valsblaðið henni til hamingju með
kjörið.
47 Valsblaðið