Vesturland - 24.12.1945, Qupperneq 8
180
VESTURLAND
mannvirkjum og gjöreyddu
öllu lífi á tugkilómetra svæði.
Getur þetta endurtekið sig,
á sagan eftir að endurtaka sig
hér eins og svo oft áður?
Frjáls hugsun — sannur
kristindómur — er eina
ráðið.
Vissulega eru gömlu skilyrð-
in fyrir styrjöld enn fyrir
hendi, misskipting auðæfanna
í heiminum, misbeiting valda-
aðstöðu í höndum einstaklinga
eða fámennra hópa er enn
hugs^nleg.
Þó er aldrei hægt að heyja
stríð nema að hafa fjöldan
með sér, en fjöldinn lætur
blekkjast, af því að hann er
ekki nógu frjáls í hugsun, elcki
nógu trúr við undirstöðuatriði
kristindómsins.
Hvað þurfti Hitler að gera
til þess að fá þýzku þjóðina út
i stríð?
Hann réðist fyrst á kristin-
dóminn, hann tók þjónustu-
lundina frá fólkinu og setti
herralundina í staðinn, hann
tók frá því kærleikann og setti
hatrið í staðinn, hann lofaði
því gulli og grænum skógum,
lék á strengi hinna lægstu
hvata, eigingirnina.
Fólkið féll honum til fóta,
og kallaði yfir sig eymd og
hörmungar, sem ekki eiga sinn
líka í sögunni og allur heimur-
inn er nú vitni að.
. Og Þetta sama er alltaf að
ske í smærri og stærri stíl,
nær og fjær.
Þúsundáraríkið verður aldrei
að veruleika og friðuripn
aldrei tryggður með samning-
um og refjum stjórnmála-
mannanna einna. Eina örygg-
ið sem varanlegt er, fæst að-
eins með hugarfarsbreytingu
heima fyrir, þar sem lögð sé
áherzla á grundvallaratriði
kristindómsins, lítilæti, um-
burðarlyndi, óeigingirni, þjón-
ustulund, náunganskærleilca.
Þessi öfl eru öll meira og
minna vakandi hjá flestum
mönnum, en þau þurfa rækt-
unar við.
Sumir, metorðagjarnir bæla
þessi öfl niður með sér, þykja,
þau vera sér fjötur um fót í
skefjalausri valdastreitu, og
almenningur lætur þetta gott
heita, þykir jafnvel mikið til
koma og það þótt troðið sé á
sannleikanum, svo öfugsnúið
getur almenningsálitið orðið
])egar hugarfarið er óræktað
og hugsunin fjötruð.
Getum við Islendingaj*, fáir
og smáir, nokkuð gert til að
hafa áhrif á stríð og frið í
heiminum. Já, vissulega.
Hver einstaklingur býr yfir
mikilli hugarorku, sálarorku,
sem ef henni er beint i rétta
átt og allir leggjast á eitt, á
grundvelli þroskaðs hugarfars
og frjálsrar hugsunar, getur
kveikt lítinn neista, sem felur
í sér möguleika leiftrandi vita
er lýsa kunni um heim allan.
Og að endingu þetta:
Innsta eðli hlutanna.
Frumeindarannsóknirnar
hafa með stj örnufræðirann-
sóknunum leitt í ljós undra-
verð sannindi, sem eiga eftir
að gerbreyta skoðunum manna
á anda og efni og fyrst og
fremst verða til þess að kippa
stoðunum undan skoðunum
hinna hatrömmustu efnis-
hyggj umanna.
Himingeymurinn er kúlu-
laga, hann er stöðugt að færa
út kvíarnar frá miðpunkti, að
þenjast út.
I honum er fjöldi vetrar-
brautra og stjörnuþoka, sem
samsettar eru af miljónum
sólna, stjarna. Miljónir þess-
ara sólna eiga sér sólkerfi, eitt
er okkar; þar fara, pláneturnar
eða jarðstjörnurnar á fleygi-
ferð í kringum kjarnan, sólina.
Miðflótta-afl jarðstjarnanna
togast á við aodráttarafl, segul-
afl, sólar, svo allt helzt í jfan-
vægi.
Ein þessara jarðstjarna er
jörðin okkar. Hún er samsett
úr ótal efnum, en aðeins 92
frumefnum.
Innsti kjarni hvers frum-
efnis er frumeindin. Allar
frumeindir eru byggðar eins, á
sama hátt og sólkerfin. I þeim
er einn kjarni, og i kringum
hann sveima mismunandi
margar agnir með geysihraða
i líkingu við jarðstjörnurnar í
kringum sólina.
Miðflótta-afl þessara agna
togast á við aðdráttarafl kjarn-
ans, svo allt helzt í jafnvægi,
nema einhverjum vísinda-
manninum takizt með kjarna-
kljúf að skjóta fleyg inn og
raska jafnvæginu, en þá hefst
sprenging og mikil orka losnar.
Kjarninn og agnirnar, sem i
kringum hann snúast eru
raunverulega elckert annað en
rafmagnshleðslur með að-
drægu og frádrægu rafmagni,
þá getur hver og einn reynt
að gera sér í hugarlund, hvað
efnið raunverulega sé — raf-
magn — rafmagn í jafnvægi
og ekkert annað. Raunveruleg-
ur mismunur hluta í kringum
okkur hart, mjúkt, þungt, létt,
ljóst, svart, er þá ekkert ann-
að en mismunur á fjölda, agna
eða hraða agna í kringum
kjarnan og hleðslumismunur.
Ef við gætiun hugsað okkur
risa svo stórann, að hann væri
jafnmörgu sinnum stærri en
sólin og við erum mörgu sinn-
um stærri en frumeindakj arn-
inn, þá myndi himingeymur-
inn, sem oss sýnist mest megn-
is tómur, vera í höndum þessa
risa og frá háhs sjónarmiði
eins þéttur og harður viðkomu
og málmkúla. Sá veraldarmátt-
ur er mikill, sem stjórnar
Jæssu öllu, og vér eigum í oss
fólginn snaran þátt kraftar-
ins, lífsandann.
Ef vér fengjum skilið þetta
til fulls, gætum höndlað kraft-
inn, sem í oss býr, þá myndi
afstaða okkar til umheimsins
breytast mikið, þá myndi ým-
islegt, sem oss nú sýnist eftir-
sóknarvert, fánýtt, þá mynd-
um við fljótt komast að raun
um, að skynsemin er ekki ein-
hlýt, heldur mun kærleikurinn,
sem stefnir til samruna og að-
lögunar verða vænlegastur til
brautargengis — og þá gæti
kjarnorkuöldin aldrei fært oss
annað en hagsæld og blessun
— hið langþráða þúsundára
ríki á jörðu.
jjllllllllllllllllll!lllllllllllllllllllll||||l||lll|l||||||llllllllllllllll|||||||||||||||||||||||||||||ll||||||||||||||||||||||||||||||[|||||||||||||||||||[!
ISFIRÐIN G AR—VESTFIRÐIN G AR!
Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs. 1
Þökkum ágætan stuðning og starf allra okkar
vina á liðna árinu. §
Snnniiknvinn.
GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NYTT ÁR!
Þakka viðskiptin.
Ágúst Pétursson fisksali |
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii!
Gleðileg jól! Farsælt komandi ár!
| Þökk fyrir viðskiptin.
Vitinn.
GLEÐILEG JÓL! GOTT KOMANDI ÁR!
— ’ 1
Þakka viðskiptin. =
| Billiard ísafjarðar. |
|iiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiii!
GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NtTT ÁR!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Utge’rðarfél. VISIR h. f., Súðavík.
|iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|
Starfsfólki voru og öllum viðskiptavinum
óskum vér gleðilegrar jólahátíðar og farsældar
á árinu 1946.
Hraðfrystihúsið Frosti h. f., Súðavík.
5 =
|i........................................................................... |
| GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁR!
Sveinn Sveinsson, frá Felli.
Iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii
I