Vesturland - 24.12.1945, Side 14
186
VESTURLAND
þeim. — Þannig varð hinn
fyrsti maður til, og síðar skóp
faðir Hrafn marga menn, bæði
karla og konur. En svo er sagt,
að allir menn, að hinum fjór-
um fyrstu undanteknum, hafi
verið skapaðir úr leir, en þess-
ir fjórir, sem komu úr bauna-
belgnum, urðu forfeður hraust-
ustu ættkvísla á jörðinni.
Frá því er sagt, að í upphafi
vega hafi ekki verið mikill
munur á mönnum og dýrum.
Dýr gátu orðið menn og menn
að dýrum. Mennirnir gengu
ýmist á höndunum eða á fjór-
um fótum. Það var ekki fyrr
en síðar, að þeir lærðu að
ganga uppréttir. Það fyrsta,
sem mennirnir lögðu sér til
munns, voru ber, en svo sagði
faðir Hrafn þeim, að þeir
skyldu veiða dýr. En það var
alls ekki hægt um vik, því
myrkur grúfði yfir jörðinni. —
Þá kallaði faðir Hral'n þröst-
inn til sín og segir við hann,
að þar sem hann hafi verið til
á undan sér, viti hann máslce
meira. Hann skuli því fljúga
á braut og finna Ijós handa
jörðinni, svo mennirnir geti
veitt sér til viðurværis. Og
þrösturinn flaug á hrott út í
myrkrið, og svo lengi var hann
burtu, að faðir Hrafri hugði að
íokum að hann myndi aldrei
koma, aftur. Ekki var hægt, að
telja daga og nætur, því allt
rann út í eitt. Það var enginn
tími til, og þess vegna v:sr ekki
hægt að vita, hvað þrösturinn
var húinn að vera lengi. En
loksins kom þrösturinn aftur
og bar tvo skjásteina í nefinu,
af öðrum lýsti en hinn var
ljóslaus. Faðir Iirafn brýtur.
mola af þeim, sem lýsti, og
kastaði honum í loft upp. Á
sömu stundu ljómaði ljós á
lofti, en svo var það sterkt, að
faðir Hrafn fékk ofbirtu i aug-
un. En í fyrsta sinni sáu menn-
irnir sem í leiftursýn landið,
sem þeir lifðu i, skógana, dýr-
in og fuglana, og þeir glödd-
ust yfir fegurðinni, sem fyrir
augu þeirra bar. Lífið varð
þeim mikilsverðara og til-
gangsríkara. En þetta ljós var
of skært, það blindaði brátt
augu mannanna. Og þá braut
faðir Hrafn mola af hinum
steininum og kastaði á eftir
hinum fyrri. Við það dró úr
ljósmagninu, svo ])að var ekki
lengur óþægilegt. Svo kom nótt
og færði mönnum hvild. Upp
frá þessu skiptist á dagur og
nótt.
Faðir Hrafn kenndi mönn-
um að byggja hús, sem veittu
þeim skjól fyrir vatni og vind-
um. Hann kenndi þeim að
smiða kajakka og háta og alls
konar veiðarfæri, svo þeir gætu
ferðast á sjónum og veitt sér
til matar.
Mönnum og dýrum fjölgaði
ört og eylandið þeirra var að
verða of lítið. Aðeins hafið var
nógu stórt. Þá vildi það til, að
skrímsli eitt mikið og ógurlegt
ásýndum kom rétt að landi.
Þegar i stað gerðu menn til-
raunir til að ráða það af dög-
um, en skutlarnir bitu ekki á
það og allt kom fyrir ekki. Er
faðir Hrafn sá hina vonlausu
baráltu mannanna, sagði hann
þrestinum að fylgja sér eftir
og fljúga yfir skrímslinu með-
an hann kastaði skutli sínum.
Þannig tókst föður Hrafni að
drepa skrímslið. Og eftir mik-
ið erfiði gátu svo mennirnir
hútað það í sundur, og síðan
hentu þeir bitunúm i sjóinn.
en þeir urðu að landi. Þannig
varð meginlandið til, og Jiað
varð nóg rúm fyrir alla menn
og dýr á jörðinni.
Þegar svo jörðin var full-
sköpuð, kallaði faðir Hrafn
mennina til sín og sagði við þá:
„Ég er faðir ykkar allra og hef
gefið ykkur land ykkar og lif,
— og mér megið ])ið aldrei
gleyma“. — Svo hóf hann sig
frá jörðu og flaug til himins.
Þar kastaði hann því, sem eft-
ir var af steinunum, og sem
voldugt eldhaf breyddist ljós-
ið yfir heiminn.
Þannig, segja sagnirnar, að
himininn, jörðin, mennirnir
og dýrin hafi orðið til. En yfir
því öllu var faðir Hrafn, og yf-
ir honum þrösturinn.
(Þýtt og endursagt úr bókinni
Festens gave, eftir Knud Rasmus-
sen.)
Guðjón Halldórsson.
GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NYTT ÁR!
Útvegsbanki Islands h. f.-
Útibúið á ísafirði.
GLEÐILEG JÓL! GÆFURlKT NYÁR!
Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Bökunarfélag Isfirðinga h/f.
Tilkynning
frá skattstofu ísafjarðar.
Hérmeð er lagt fyrir alla kaupgreiðendur í ísa-
fjarðarkaupstað, að hafa skilað skýrslum um kaup-
greiðslur, orlofsfé, aflahluti og önnur hlunnindi starfs-
fólks síns árið' 1945, til skrifstofu minnar, eigi síðar
en 10. janúar næstkomandi.
Áríðandi er að launamiðar greini frá fullu nafni
og heimilisfangi launþega, þar sem vöntun á slíku
getur valdið því, að launamiðar verði ekki heimfærð-
ir á rétta aðila, en afleiðing þess svo orðið sú, að
viðkomandi kaupgreiðandi fái ekki upphæðir slíkra
launamiða taldar til frádráttar á tekjum sínum.
Eyðublöð undir launaskýrslur fást á skrifstofu
skattstjóra.
Isafirði, 17. desember 1945.
Skattstjóri.
r
Utgerðarmenn!
Veiðarfæri allskonar
Skipavörur allskonar
Málningarvörur allskonar
Vinnufatnaður
Sjófatnaður
Gúmmístígvél
Tréskóstígvél
Klossar
Fatnaðarvörur
hverju nafni sem nefnist
Saumum segl og presseningar
af öllum stærðum og gerðum
G E Y S I R H. F.
V eiðarf æradeildin
B
ísv VERZLUNIN >
EDINBORG
Þegar þér komið til Reykja-
víkur, þá leggið leið yðar
um Hafnarstræti í
EDINBORG