Vesturland - 24.12.1966, Síða 9
XTJTT. árgangur.
ísafjörður, jólin 1966
28.-39. tölublað.
1
I
1
I
SR
1
m
1
1
83
m
i
i
m
1
|
I
Guðsríkið kemur
Jólahugleiðing eftir sr. Andrés Ólafsson
83
m
Blessufi jólin núlgast hröðum skrefum og þú finnur
áhrif þeirra á hug þinn og hjarta. Hvers vegna orka
þau svo sterkt á hugi kristinna manna?
Þaö er sökum þess, aö jólin eru hátíð hins heilaga
í mannssálunum, hátíö lians, sem öllum öðrum fremur
hefur hreinsað og helgað mannlegt líf. Við höldum
minningarhátíð hans, er flutti okkur fagnaðarboðskap-
inn um kærleiksríkan Guð og gagnlcvæman kærleika
mannanna og gerði þá dgrðlegu hugsjón að veruleika
í lífi sínu. „Nýtt borðorð gef ég yður“, sagði hann,
„þér skuluð elska lwern annan á sama hátt og ég
hefi elskað yður“. Kærleikurinn til Guðs, föður, átti
að birtast í kærleikanum til náungans, í breytni okkar
hverir við aðra. Þetta voru lögin í ríki hans — guðs-
ríkinu — sem hann stofnaði hér á jörðu.
1 19 aldir höfum viö mennirnir lieyrt þessi unaðs-
fögru orð lians. Enn erum við þó eigi komnir lengra
en það, að alla jafnan eru þau ekki efst í huga okkar.
og því er breytni okkar líka í samræmi við það. Það
er aðeins á fáeinum augnablikum í lífi okkar, sem
sú hugsun nær yfirtökum í liuga okkar, og það er
öllum öðrum fremur á jólunum. Aldrei er kærleiks-
hugsjón Krists nær oklcur en þá, aldrei skiljum við
betur en þá, aldrei erum við nær guðsríkinu en þá.
En hvers vegna einmitt á jólunum?
Venjulega er það svo, að við viljum sjálf ráða
göngu okkar í lífinu og kærum okkur eigi um íhlutun
annarra þar um. Okkur finnst við vera orðin nægilega
stór og þroskuð til þess að ganga ein og óstudd, nægi-
lega vitur til þess að skapa okkar eigin lífsskoðun.
Við dáumst að lífsspeki Krists og kenningu en skortir
þó manndóm til þess að fara eftir henni. Og þó er
það einkum annað er liendur í veginum fyrir því að
við alla jafnan getum tileinkað okkur kenningu hans,
en það er stærilæti okkar og sjálfsálit. Því „sannarlega
segi ég yður: Nema þér snúið við og verðið eins og
börnin, komist þér alts eigi inn í himnaríki. Hver,
sem því lítillækkar sig eins og barn, sá er mestur í
himnaríki." Fyrsta og eina skilyrðið til þess að geta
orðið meðlimur guðsríkisins er þá þetta, að lítillækka
sig eins og barn. Ilinn fölskvalausi, einlægi og hreini
hugur barnsins er skilyrðið til þess að við getum veitt
viðtöku og tileinkað okkur hinar háleitu hugsjónir,
sem liann, mannkynsfrelsarinn, lifði og dó fyrir.
A jólunum verðum við börn í annað sinn. Barnið
Kom þú hátíð kærleikans!
Láttu blessuð Ijós þín skína,
Ijóma dýrðar geisla þína
inn í sálu sérhvers manns.
(M. J.)
i jötunni laðar fram barnið í okkur sjálfum. Þess
vegna skiljum við einmitt þá svo vel lögmál guðs-
ríkisins, enda stöndum við aldrei nær því en þá.
Og hverjar eru afleiðingarnar af því að barnseðlið
valaiar á mj? Algjör liugarfarsbreyting verður. Við
finnum til sannrar og einlægrar gleði, hreinnar gleði,
og okkur finnsl við aldrei vera sannari og betri menn
og konur en einmitt þá. Þess vegna dásömum við jólin
og blessum þau.
Á jólunum kemur guðsríkið til okkar í svip, en
aðeins í svip, því hugarfar barnsins hverfur aftur í
umstangi hversdagslífsins. En þau nægja þó til þess
að gefa okkur áirlega sanna gleðistund, — til þess að
sýna okkur, að öll erum við í raun og veru Guðs börn
og hæf til guðsríkisins, ef við liöfum aðeins nógu
sterkan vilja til þess. Og því skyldum við eigi hafa
hann, þegar Guð mætir okkur á miðri leið. Það er
eitt af mörgu dásamlegu við jólin.
„llvert fátækt hreysi liöll nú er,
því Guð er sjálfur gestur hér.”
Þannig syngjum við á heilögum jólum, og við finnum
til þess að þau orð eru sönn.
Það er ekki liið ytra skraut og glys jólanna sem
skapar helgi þeirra eða gefur sanna jólagleði, ekki
liinn margháttaði undirbúningur þeirra. Allt slíkt er
fánýtt, ef hjarta þitt er eigi með í jólagleðinni, ef það
er eigi opið fyrir boðskap jólanna. Hvort sem þú lifir
í meðlæti eða mótlæti þá er hamingja þín og sönn
jólagleði því skilyrði háð fyrst og fremst, að mynd
hans, sem fæddist á jólunum, sé mótuð í huga þinn.
Hin sanna jólagleði fæst aðeins með hugarfari barns-
ins, auðmýkt, einlægni, og trúmennsku. Auðmýkt
gagnvart Guði, einlægni við sjálfan sig og aðra, og trú-
mennsku við vilja Guðs og þjónustu fyrir hann. Með
þessu eina móti getur þú eignast sönn jól hvað sem
ytri ástæðum þínum líður.
GLEÐILEG JÓL I
ÖS5
1
É5
m
m
©5
m
m
I
I
I
m
I
m
m
!
I
Í5
m
íi*-
m
1
m
'És
m