Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 24.12.1966, Qupperneq 27

Vesturland - 24.12.1966, Qupperneq 27
27 Miklar fjárveitingar til Iramkvæmda á Vestfjöröum Fjárlögin hækka um 900 milljónir króna Samtal við Signrð Bjarnason frá Vignr Afgreiðslu f járlaga lault á Al- þingi sl. miðvikudag. Af því tilefni átti Vesturland samtal við Sigurð Bjarnason alþingis mann frá Vigur, forseta Neðri deildar, og leitaði fregna hjá honum um fjár- veitingar til ýmsra hagsmuna mála Vestfirðinga. Fórust honum orð á þessa leið. — Þess er fyrst að geta, segir Sigurður Bjarnason, — að heildarniðurstöðutölur á fjárlögum 1967 verða þessar: Á rekstraryfirliti eru tekjur áætlaðar 4,7 milljarðar kr. en gjöld rúmlega 4,4 mill- jarðar kr. Kekstrarafgangur er því 241 millj. kr. Á sjóðsyfirliti eru innborg- anir 4 milljarðar 711 millj. kr. og greiðsluafgangur 1,9 millj. króna. Eru fjárlög árs- ins 1967 900 millj. kr. hærri en ársins 1966. Að því er varðar fjárveit- ingar til framkvæmda á Vest- fjörðum held ég að óhætt sé að segja, að við getum allvel við þær unað. Gert er ráð fyrir að haldið verði áfram miklum framkvæmdum og uppbyggingu á fjölmörgum sviðum. IIAFNIR Hverjar eru fjárveitingar til hafna á Vestfjörðum? — Fjárveitingar til vest- firzkra hafna eru þessar: Bíldudalur 500 þús. kr.: Bol- ungarvík 600 þús., Drangs- nes 100 þús., Flateyri 600 þús., Hólmavík 50 þús., Isa- fjörður 500 þús., Norðurfj. í Árneshreppi 300 þús., Pat- reksfjörður 500 þús., Súða- vík 300 þús., Suðureyri 500 þús., Tálknafjörður 100 þús. Þingeyri 500 þús. — Samtals verða þetta 3 millj. og 750 þús. kr. En auk þess er veittur styrkur til þriggja ferjubryggja; Brjáns- læk 400 þús., Stað á Reykja- nesi 100 þús. kr. og Eyri í Mjóafirði 100 þús., — Samtals eru því veittar 4 millj. og 350 þús. kr. til hafnargerða og ferjubryggja á Vestfjörðum á fjárlögum næsta árs. Verður framkvæmdum Vest íjarðaáætlunarinnar í hafnar málum haldið áfram af full- um krafti næsta ár. Þá má geta þess, að 200 þús. kr. eru veittar til sjóvarnargarös á Flateyri og 20 þús. kr. til fyrirhleðslu við Kollabúaá hjá Kollabúðum í Þorskafirði. 1 MILLJÓN KRÓNA AFMÆLISGJÖF — Þá er veitt ein millj. kr. til elliheimilisbyggingar á Isafirði. Er hér um að ræða eins konar afmælisgjöf til ísa fjarðar í tilefni 100 ára af- mæli kaupstaðarins. Til sjúkraflugs á Vest- fjörðum eru veittar 125 þús. kr. Er hér um að ræða nýja fjárveitingu, sem áreiðanlega kemur sér vel. 16 MILLJ. TIL SKÓLABYGGINGA Hvaða skólabyggingar á Vestfjörðum fá fjárveitingar á fjárlögum 1967? ■— Þegar litið er á skóla, sem hafa verið í byggingu og á framkvæmdaáætlun ársins 1966, kemur fyrst fjárveit- ing til Mosvallaskólahverfis, 75 þús. kr., og Reykhóla 206 þús. kr. Er hér um að ræða barnaskóla. Þá eru 100 þús. kr. fjárveiting til barnaskól- ans á Flateyri, 500 þús. kr. til bamaskólans í Bolungar- vík, 1 millj. 752 þús. til bama skólans á ísafirði, 107 þús. kr. til skólastjóraíbúðar á Flateyri, 220 þús. til skóla- stjóraíbúðar á Hólmavík, 194 þús. til skólastjórabústaðar í Hnífsdal, 648 þús. til skóla að Klúku í Bjarnarfirði og 117 þús. kr. vegna sundlaugar innar á Reykhólum. — Þá eru veittar 8 þús. kr. til skólabifreiðar í Suður- fjarðahreppi í Amarfirði. — Til nýs unglingaskóla fyrir Austur-Barðastrandar- sýslu að Reykhólum er veitt ein millj. kr. Til Mýrarskóla í Vestur-ísafjarðarsýslu 500 þús. og 230 þús. til skóla- stjóraíbúðar í Súðavík. — Til barnaskólans í Tálknafirði eru veittar 660 þús. kr. og til barnaskólans á Bíldudal 7115 þús. — Til héraðsskólanna í Reykjanesi og að Núpi em veittar myndarlegar fjárveit- ingar til áframhaldandi upp- byggingar skólanna. Eru veitt ar 3,1 millj. kr. til héraðsskól ans í Reykjanesi og 4,2 millj. kr. til héraðsskólans að Núpi. — Þá eru veittar 1,5 millj. kr. til hins fyrirhugaða menntaskóla á ísafirði. Hér er að sjálfsögðu aðeins um að ræða framlög til bygginga- framkvæmda. — Eru samtals veittar tæp ar 16 millj. kr. til skólabygg- inga á Vestfjörðum. — Geta má þess, að til Listasafns Isafjarðar eru veittar 25 þús. kr. SKÓGARVÖRÐUR FYRIR VESTFIRÐI — Það má telja til ný- mælis, að nú er í fyrsta skipti tekin inn á fjárlög fjárveiting til þess að launa skógarvörð á ísafirði, sem ætlazt er til að hafi yfirumsjón með skóg- ræktarstörfum á Vestfjörð- um. — Er að því veruleg bót. Er gert ráð fyrir að skógar- vörðurinn hefji störf hér vestra um mitt næsta ár. Hafa þingmenn Vestfjarða haft samráð við stjórn Skóg- ræktarfélag Islands um þessa ráðstöfun. 2 MILLJ. KR. TIL FLÓABÁTA — Til flóabáta á Vest- fjörðum eru fjárveitingar sem hér segir: Til Djúpbáts 1350 þús. kr., til Flateyjarbáts á Breiðafirði 455 þús., til Strandabáts 60 þús. og til Skötufjarðarbáts 20 þús. kr. Eru þannig veittar tæpar 2 millj. kr. til flóabátasam- gangna á Vestfjörðum. — Að sjálfsögðu eru svo ýmsar fjárveitingar til stofn- ana og framkvæmda á Vest- fjörðum innifaldar í heildar- fjárveitingum á ýmsum lið- um fjárlaga, td. framlög til tónlistarskóla, sjúkraflug- valla o.sfrv. — Framlög til vega og brúargerða eru veitt á vega- áætlun, sem samin er til fjögurra ára, en heimilt er að endurskoða á tveggja ára fresti. — Á framhaldsþinginu í vetur verður tekin afstaða til þess, hvort vegaáætlunin skuli endurskoðuð á þessu ári. Ber brýna nauðsyn til þess. Hvað um framkvæmdir í raforkumálum á Vestfjörð- um? — Um það er erfitt að full- yrða nokkuð á þessu stigi málsins, en við Vestfjarða- þingmenn, sem styðjum ríkis- stjórnina höfum ritað raforku málastjórninni og lagt mikla áherzlu á sem skjótasta lagn- ingu þeii'ra raforkulína, sem falla undir rafvæðingaráætl- unina. Ennfremur höfum við gert tillögur um að unnið verði að lausn á raforkuvanda málum strjálbýlustu byggðar- laganna, sem ennþá eru utan framkvæmdaáætlana í raf- orkumálum. — En eins og ég hefi áður skýrt frá í Vesturlandi, eru ennþá um 1000 manns, sem hvorki njóta raforku frá sam veitum, sérvirkjunum Raf- orkumálaskrifstofunnar né dieselstöðvum. Þetta er eitt erfiðasta vandamál okkar vestfirzku sveita, segir Sig- urður Bjarnason að lokum. Gef gaum... Framhald af 25. síðu. gildi þeirra. Skemmum þær ekki með heimsku og gáleysi. Við tjalddyrnar þínar, ungi maður, unga stúlka, situr skynsemin og talar til þín. Hlusta á hana og gef gaum að orðum hennar. Já, gef gaum að sjálfum þér, því að hamingja þín er alltaf á næsta leiti við þig. Gæt hjarta þíns og rannsaka eigin innri mann, því a, þar eru rætur hamingju þinnar, þíns eigin lífs. Að lokum þetta: Þökkum Guði vorum og skapara ham- ingjudagana og alla blessun, sem hann leiðir yfir okkur, og megi forsjá himinsins halda almáttugri verndar- hendi sinni yfir þessum stað, yfir þessu héraði, yfir þess- um landhluta, Vestfjörðum, yfir landi og þjóð. Guð blessi Barðstrendinga- félagið og alla starfsemi þess. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur frið og fögnuð í hug og hjarta, og vernd á langri vegferð. Hlíðin mín fríða hjalla meður græna, blágresið blíða , berjalautu væna. Á þér ástaraugu ungur réð ég festa, blómmóðir bezta. Sigurður Bjarnason alþingisinaður.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.