Bjarmi - 01.12.2003, Blaðsíða 27
Heiga Vilborg Sigurjúnsdóttir
Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég
segi aftur: Verið glaðir. Ljúflyndi
yðar verði kunnugt öllum mönn-
um. Drottinn er í nánd. Veriö ekki
hugsjúkir um neitt heldur gjörið í
öllum hlutum óskir yðar kunnar
Guði með bæn og beiðni og
þakkargjörð. Og friður Guðs sem
er æðri öllum skilningi mun varð-
veita hjörtu yðar í Kristi Jesú.
Fil. 4:4-7
Þessi orð Páls postula hafa
veriö mér hugleikin að undan-
förnu.Hann segir: „Verið ávallt
glaöir..." Hann segir ekki verið
stundum glaðir eða veriö glaðir
þegarvel gengur, nei hann segir
ávallt sem merkir alltaf, hvenær
sem er og í hvaða aðstöðu sem við
erum. En hvernig er það mögu-
legt? Við sem lifum hér á þessari
jörð þekkjum mætavel að lífið er
ekki alltaf auðvelt. Við verðum
fyrir þjáningum og erfiðleikum.
Sorg og sjúkdómar herja á okkur
og þegar viö horfum á það sem er
að gerast út i heimi sjáum við
jafnvel enn meiri þjáningu, stríö,
hungur, fólk hneppt i þrældóm og
þannig getum við endalaust talið
upp. Hvernig er hægt aö vera
ávallt glaður í slíkum heimi?
Þegar Páll skrifaði þessi orö til
safnaðarins í Filippí sat hann
Guði
sjálfur í fangelsi. Hann þekkti vel
þjáningar þessa heims en hikaði
þó ekki við að skrifa söfnuðinum
þessi uppörvunarorð vegna þess
að hann þekkti hina sönnu gleði.
Svarið viö spurningunni hér á
undan felst í orðunum sem næst
koma í textanum: „Verið ávallt
glaðir í Drottni."
Orðið gleði getur haft marg-
víslega merkingu. Við getum virst
glöð og kát á yfirborðinu en hver-
su djúpt nær gleðin? Gleðin sem
Páll er aö tala um i textanum er
sú gleði sem Drottinn Guð einn
getur gefið. Hún gerir manni kleift
að gleðjast þrátt fyrir erfiðleika og
þjáningu. Gleði yfir þvi að eiga
Drottin Jesú Krist sem leiðtoga og
frelsara sem leiðbeinir og huggar
á erfiðum stundum.
Stundum leyfir Guð þjáning-
una i lífi okkar til þess að við
skiljum hversu stórkostlegur hann
er og hvers hann er megnugur.
Það hef ég sjálf oft upplífaö í
mínu eigin lifi og ekki síst núna
undanfarið. í gegnum veikindi,
missi og fleiri þrautir hefur Guð
kennt og sýnt mér svo margt.
Hann hefur sannfært mig um það
að hann leyfir ekki meira en það
sem ég get boriö. Hann hefur leyft
mér að upplifa hvernig hann getur
blessað i gegnum erfiðleikana og
snúiö þeim til góðs. Hann hefur
sýnt mér hvernig hann ber mig
yfir erfiðustu hjallana og siðast en
ekki síst hefur hann í gegnum
þetta allt kennt mér að gleðjast
þrátt fyrir erfiðleikana. Ég hef
fengið að upplifa á svo áþreifan-
legan hátt þessa sönnu gleði og
þann frið sem Páll talar um i Fil-
ippíbréfinu.
Ef til vill er einhver sem hugsar
þá: „En ég? Hvað meö mig? Hvers
vegna hef ég ekki fundiö þessa
sönnu gleöi? Hvernig öölast ég
þessa gleði?" Svarið fáum viö
þegar við lesum áfram: „Verið ekki
hugsjúkir um neitt heldur gjörið í
öllum hlutum óskir yðar kunnar
Guði meö bæn og beiöni og þakk-
argjörö."
Viö þurfum ekki annað en að
koma fram fyrir Guö og leggja allt
okkar traust á hann. í því þjóöfé-
lagi sem við lifum er auðvelt að
vera hugsjúkur eða áhyggjufullur
og nú þegar jólin nálgast finnst
mörgum að þeir séu að bugast af
streitu og álagi einmitt þegar við
ættum aö nota timann til aö
gleðjast og vera í friði og ró. En
einmitt þá er svo mikilvægt að
gefa sér tíma með Honum sem vill
taka á móti hverjum og einum
með frið og sanna gleði. í mínum
huga er þakkargjörðin lykilhugtak í
þessu samhengi. Við getum alltaf
fundið eitthvað sem við megum
þakka Guði fyrir. Það aö koma
fram fyrir Guð í þakkargjörö opnar
leiðina að þessari sönnu gleði. Það
gerist þegar við opnum augu okkar
fyrir öllu því sem Guð hefur gert
fyrir okkur og þvi hversu stórfeng-
legur hann er. Jafnframt þakkar-
gjörðinni megum við svo leggja
byrðarnar sem íþyngja okkur við
fætur hans og taka á móti friöin-
um sem hann vill færa okkur:
„Og friöur Guðs sem er æðri
öllum skilningi, mun varðveita
hjörtu yðar og hugsanir yðar í
Kristi Jesú." Það er sá Kristur
Jesús sem fæddist i þennan heim
sem litið fátækt barn og var lagö-
ur í jötu, sá sami Jesús Kristur og
var svikinn, hæddur, píndur og að
lokum deyddur á krossi, sá sami
Jesús Kristur sem reis upp og sigr-
aði dauðann, sonur Guös sem vill
gefa þér friö og sanna eilífa gleöi.
Megi Guð gefa þér og þínum
GLEÐILEG jól!
Höfundur er tónmenntakennari og
kórstjóri barna- og unglingakóra Hall-
grímskirkju. hvs@hallgrimskirkja.is