Bjarmi - 01.12.2003, Side 38
Hún fékk
sálmana frá Guði
100 ára minning Linu Sandell
Víöa í Skandinavíu var þess
minnst f sumar að 100 ár voru í
ár liðin frá andláti Línu Sandell
(Carolina Wilhelmina Sandell-
Berg), eins þekktasta sálmahöf-
undar Svía. Hún fæddist árið
1837. Faðir hennar var sóknar-
presturinn og prófasturinn Jonas
Sandell. Hann uppgötvaði fljótt
að Lína bjó yfir einsökum hæfi-
leikum til að semja Ijóð. Hún
sjálf var hugfangin af erlendum
tungumálum og klassískum bók-
menntum og lagði stund á nám í
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilíf náð þín, faðir, gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
þegar Guð minn fyrir öllu sér?
Hann sem miðlar mér af gæsku sinni
minna daga skammt af sæld og þraut,
sér til þess, að færa leið ég finni
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann, sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér:
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum
frið og styrk, sem ekkert buga má.
Auk mér trú og haltu huga mínum
helgum lífsins vegi þínum á,
svo að ég af hjartaþeli hreinu,
hvaö sem mætir, geti átt með þér
daginn hvern, eitt andartak i einu,
uns til þín í Ijóssins heim ég fer.
Sandell-Berg - Sigurbjörn Einarsson
Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar nr. 712.
þeim efnum fyrir hvatningu föð
ur síns. Hún hjálpaði föður sín-
um og var í raun ritari hans en
hafði engan áhuga á húsverkun-
um. En hún var oft veik og rúm-
liggjandi. Tímann I rúminu not-
aði hún til að yrkja. Tuttugu og
eins árs gaf hún út fyrsta Ijóða-
safnið sitt með 34 Ijóðum.
Útlitið var ekki bjart er faöir
hennar dó af slysförum og
drukknaði og stuttu síðar létust
bæöi móðir hennar og tvær systur.
Hún var ómenntuð, meö lang-
vinnan sjúkdóm, ógift og atvinnu-
laus. En þá fékk hún tilboö um at-
vinnu og var beöin um aö vinna
fyrir útgáfudeild Evangeliska
Fosterlandsstiftelsen. Hún varö
síðan fyrsti kvenforlagsstjóri Svía
og gaf út 144 bækur. Talið er að
hún hafi rutt brautina í barnabók-
menntum Svía með útgáfu Ijóða
sinna og ýmissa frásagna. Lína
gifti sig 35 ára gömul kaupmann-
inum Oscar Berg. Eignuðust þau
eitt barn sem lifði aðeins stutta
stund. Þrátt fyrir sjúkdóma og
mótlæti endurspegla sálmar
hennar trúartraust og vissu um aö
við erum örugg í hendi Guðs
Ljóð og söngvar Linu Sandell
féllu í góðan jarðveg í þeim vakn-
ingum sem gengu yfir Svíþjóö um
miðja 19. öld. Voru sálmar hennar
og söngvar vinsælir, einkum innan
leikmannahreyfinganna og fríkirkj-
unnar i Svíþjóð og Noregi framan
af, en eru nú sungnir í flestum
kirkjudeildum á Norðurlöndum.
Textar hennar voru nýir að þvi
leyti að þeir voru mýkri, persónu-
legri og tengdari reynslu höfundar
en sálmakveðskapur hafði verið
fram aö þeim tíma. Textarnir tjá
löngun, hlýju og einfalt traust á
Guði. Án efa endurspeglar þetta
reynsluheim hennarsem konu
enda nýtir hún óhikað myndir af
Guði sem móður. Sjálf var Lína
undir miklum áhrifum frá sænska
vakningarprédikaranum Carl Olav
Rosenius. Sumir sálma Línu eru
samdir við vinsæl sænsk þjóðlög
en aðrir fengu lög sín eftir á, eins
og lagið við sálminn „Dag í senn"
sem Oscar Ahnfelt samdi, en ýmsir
aðrir textar við það lag hafa verið
sungnir á Islandi i áratugi.
Lína talaði oft um að hún
hefði fengið sálmana sína frá
Guði. Ekki síst geröist það á
kvöldin eða nóttunni og hún skrif-
aöi þá niður jafnóðum. Alls eru
eftir hana um 2000 Ijóð og sálmar
skrifuð með hennar eigin hendi.
Gott dæmi um vinsældir Línu
Sandell í samtímanum er að
geisladiskurinn Blott en dag, þar
sem Carola syngur lög Línu, hefur
selst í yfir 100.000 eintökum.
Margir af söngum hennar tjá
trúartraust og fjalla um gæslu
Guðs. Meðal þekktustu sálma
hennar eru „Enginn þarf að óttast
síður" í þýðingu Friðriks Friðriks-
sonar, kvöldbænin „Ó, vef mig
vængjum þínum" i þýðingu Magn-
úsar Runólfssonar „Dag í senn,
eitt andartak í einu" í þýöingu
Sigurbjarnar Einarssonar biskups,
og „Ó Jesús gef mér sjón að sjái'
eg" í þýðingu Bjarna Eyjólfssonar.
(Agenda 3:16, nr. 7/2003; Budbareren
nr. 15, 2003)
38