Bjarmi - 01.12.2003, Side 39
Vögguljóð hirðanna
Ó, soföu, blessaö barniö frítt,
þú blundar vært og rótt.
Þig vængir engla vefja blitt
og vindar anda hljótt.
Af hjarta syngja hjarðmenn þér
til heiðurs vögguljóö sem tér:
Soföu rótt, soföu rótt, vært og rótt, soföu rótt.
Af móöurást sú mærin kær
þér mjúkan gerir beö.
En Jósef frómur færist nær
og fylgist hljóður með.
Viö lágan stallinn lömbin smá
í lotning þögul horfa á.
Soföu rótt, soföu rótt, vært og rótt, soföu rótt.
Þú hvílir mjúkt viö móðurskaut
svo milt og fjarri vá.
En senn mun krossins þunga þraut
og þjáning bjáta á.
Ó, Jesúbarn, þín vernd og vörn
oss vefji öll hin hrelldu börn.
Sofðu rótt, soföu rótt, vært og rótt, soföu rótt.
Þorgils Hlynur Þorbergsson,
umyrking, stuöst viö þýska og enska þýöingu.
Komið þér hirðar
Komiö þér hiröar, þér konur og menn
komið, því barnið frítt lítiö nú senn.
Frelsarinn Kristur oss fæddur nú er
Föðurinn tigna og lofa því ber.
Óttist ei þér!
Litum þá til hans, því lágan i stall
lagöur hann var, oss enn hljómar þaö kall.
Oss er þaö boöaö, vér berum þá frétt
i Betlehem Jesús er, þaö er víst rétt.
Gleðjist Guös stétt!
Flytja nú englarnir fagnaðarlag
fjárhiröum Betlehemsvalla í dag.
Veröi nú friðurinn víða um jörð
og velþóknun yfir oss mannanna hjörö.
Þökk sé þér gjörö!
Þorgils Hlynur Þorbergsson,
sálmurinn er þýddur úr þýsku.
Harka í Afganistan
Talíbanar, harölinumúslimar sem eitt sinn
réöu ríkjum í Afganistan þar til Banda-
ríkjaher kom þeim frá völdum, eru enn að
í landinu og myröa fólk. Fyrir nokkru var
ráöist á bíl hjálparsamtakanna Sjálfboða-
hreyfing fyrir uppbyggingu Afganistan
(VARA) og voru starfsmaður samtakanna
og ökumaöur myrtir. Mullah Abdul Samad
tjáöi fréttastofunni Reuters aö talíbanar
bæru ábyrgö á árásinni. „Viö berum
ábyrgð á öllum árásum á frjáls hjálpar-
samtök í landinu... sem eyðileggja trú Af-
gana á islam. Þeir dreifa kristilegu lesefni
og boöa kristna trú meðal fólksins... Allir
sem vinna í Afganistan aö hagsmunum
Bandaríkjanna og krossfarar eiga skiliö að
deyja." Ekki var aö sjá aö sjálfboöasam-
tökin hafi nokkur trúarleg tengsl, en Mo-
hammed Ismail, talsmaður þeirra, segir aö
hætt hafi veriö viö öll verkefni í suður-
hluta landsins og starfsmenn beðnir um
aö snúa aftur til skrifstofa sinna. (christi-
anitytoday.com, 26. sept.)
Erfitt fyrir fá-
menna trúarhópa
í Slóvakíu
Fámennum trúarhópum er gert erfitt fyrir í
Slóvakíu, þar sem lög landsins kveöa á um
aö bannað sé aö skrásetja opinberlega
trúarsamfélög sem telja færri en 20.000
manns. Þau geta þvi engan veginn byggt
samkomuhús þar sem þau geta komið
saman og lofað Guö. Hin kristnu geta ein-
ungis lifað ein i sinni trú eöa komið sam-
an i heimahúsum. Án löglegrar skráningar
getur kirkja ekki stjórnað löglegum gift-
ingum eöa jarðarförum og er ekki leyft að
starfa í skólum eöa fangelsum. Fimmtán
trúarsamfélögögum sem skráð voru á tima
kommúnismans tókst aö halda þessari
stööu sinni, en níu þeirra tókst ekki aö
uppfylla þennan 20.000 meölima þröskuld.
Jan Duran, sem stýrir kirkjumálum innan
menningarmálaráöuneytistins, segir aö
þrátt fyrir þessi rök veiti embætti hans
honum einungis vald til þess að fylgja lög-
unum eins og þau eru í dag. Mikilvægt er
aö biöja fyrir hinum kristnu sem koma
saman í smáum hópum, að þau finni fyrir
nærveru Jesú, og aö þau fái styrk til aö
vitna um Guös ríki meö djörfung.
(Forum 18 News Service)
39