Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 312
310
BÚNAÐARRIT
góða ull, ágæta fótstöðu og fagran og þróttlegan haus.
Dætur Buddu eru mjög frjósamar og fremur mjólkur-
lagnar, hrúturinn hníflóttur fékk II. verðlaun. Gimbr-
arlambið er kollótt og ágætlega gert. Budda var geld
veturgömul, en síðan hefur hún þrisvar verið ein-
lembd og sex sinnum tvílembd. Þau árin, sem Budda
var tvílembd, skilaði hún 89.0 kg dilkaþunga á fæti.
Lömbin voru jafnmörg af hvoru kyni.
Budda II 53 hlaut II. verðlaun fyrir afkvæmi.
L. Ilrulla 62, eigandi Karl Aðalsteinsson, Smáhömr-
um. F. Goði, M. Genta. Afkvæmin eru hyrnd, hvít,
örlítið igul á haus og fótum, sum því nær hvít. UUin
er hvít, fremur góð, en ekki mikil, hausinn fagur og
þróttlegur, brjóstkassa- og herðabygging frábær á
dætrunum, en hrúturinn hefur gallaðar herðar. Bak-
ið er með afbrigðum sterkt, beint og holdgróið, malir
breiðar, prýðilega holdfylltar, lærahold ágæt nema á
hrútnum, sem hlaut III. verðlaun. Krulla er ágæt
afurðaær. Hún var geld veturgömul, skilaði 56 kg
hrút tvævetur, eftir það var hún tvílembd á hverju
ári og skilaði 88.4 kg í dilkum (5 hr. og 6 g.) á fæti
að meðaltali.
Krulla 62 hlaut 11. verðlaun fgrir afkvæmi.
M. Móra 116, eigandi Karl Aðalsteinsson, Smá-
hömrum. F. Börkur 36, M. Hrefna 24. Afkvæmin eru
kollótt, hvít og hafa fremur góða ull. Þau hafa prýði-
lega brjóstkassabyggingu, breitt og holdgróið balc og
ágæt mala- og lærahold. Sonurinn, Lokkur, er góður
I. verðlaunahrútur og dæturnar prýðilegar að væn-
leika og gerð. Móra var tvílembd gemlingur og alltaf
síðan. Annað lambgimbrarlambið fórst, en hitt lagði
sig með 18.2 kg falli. Fernir tvílembingar Móru vógu
á fæti 91.2 kg til jafnaðar. Er hún því frábær afurðaær.
Móra 116 hlaut 1. verðlaun fijrir aflcvæmi.