Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 85
HRÚTASÝNINGAK
299
gamlir, sem vógu 72.7 kg. Fyrstu verðlaun lilutu 220 lirút-
ar fullorðnir, meðalþungi þeirra var 98.9 kg, og 16 hrút-
ar veturgamlir, sem vógu 84.5 kg lil jafnaðar, sjá töflu 1.
Tafla A sýnir I. verðlauna hrútana í liéraðinu, en þeir
voru lil muna vænni en I. verðlauna lirútar í öðrum sýsl-
um á sýningarsvæðinu nú í haust, sjá töflu 1. 86 hrútar
lilutu engin verðlaun eða 12.9%, og er þar um framför að
ræða frá því 1958.
öngulsslaSahreppur. Hrútar þar eru jafnvænni en
jafnaldrar þeirra annars staðar í sýslunni. Alls voru sýnd-
ir 70 lirútar, þar af hlutu 30 I. verðlaun, en 5 dæmdust
ónothæfir, og er það mikil frantför frá síðustu sýningu.
Beztur af fullorðnum hrútum var Rifkell á Laugalandi,
afburðavænn, vel gerður og lioldmikill einstaklingur,
næstir honuin stóðu í lækkandi röð, Blakkur á Sámsstöð-
um, Gráni í Kaupangi, Spakur á Öngulsstöðum og Bjart-
ur í Brekku. Beztir af veturgömlu hrútunum voru þeir
Krókur á Staðarlióli og Týr í Fífilgerði, báðir ættaðir frá
Króksstöðum.
Saurbœjarhreppur. Sýningin var ágætlega sótt, og alls
voru sýndir 108 hrútar. Þeir fullorðnu voru léttari að
meðaltali en jafnaldrar þeirra í öðrum lireppum sýslunn-
ar, og þeir veturgömlu undir sýslumeðaltali. 35 lirútar
hlutu I. verðlaun eða 32.4, en 23 dæmdust ónotliæfir
eða 21.3% sýndra lirúta, og er það mikil afturför frá
síðustu sýningu 1958, en sér í lagi voru þó veturgömlu
hrútarnir injög slakir, aðeins einn þeirra lilaut 1. verð-
laun, sjá töflu 1 og A. Beztu hyrndu hrútarnir þriggja
vetra og eldri voru: Geir á Arnarstöðum, en liann stóð
efstur af tveggja vetra hrútum þar á sýningu 1958, Roði í
Dalsgerði, öðlingur á Torfufelli og Doðri í Arnarfelli frá
Hóliim. Af tvævetlingunum hymdu stóðu efstir: Fífill
og Þokki í Dalsgerði og Spakur í Öxnafelli, rígvænn, en
háfættur og linur í lærum. Efstir af kollóttum hrútum
stóðu: Kollur á Möðruvöllum, nú 6 vetra og lieldur sér
afburða vel, og sonur hans Logi á Vatnsenda, sem hefur