Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 193
HRÚTASÝMNCAIÍ
407
afturfótum, Víkingur á Hesti, sonur Kappa á Varmalæk,
þróttmikill og vel gerð'ur, Bassi á Hesti, sonur Veggs þar,
smá kind, en gróinn í holdum, og Þristur á Varmalæk frá
Þingnesi. Af veturgömlu lirútunum voru beztir: Kútur á
Hesti, sonur Prúðs, Árn., vel gerð holdakind, Marteinn
á Hesti, sonur Þórs á Hvítárbakka, Vinur á Hesti, sonur
Mergs, Árn. og Atgeir á Hesti, sonur Glóa frá Oddgeirs-
hólum. Margir af þessum beztu hrútum eru frá Hesti eða
ættaðir þaðan. Það er mikill fengur að því fyrir fjárrækt-
arbændur í Andakílshreppi að liafa slíkt hú sem Hests-
búið er innan hreppsins. Ættu þeir að geta styrkt f járrækt
sína mikið með því að kaupa og nota úrvalslirúta frá Hesti
ásamt tæknifróvgun ineð sæði úr úrvalshrútum af þing-
eyskum stofni í Árnessýslu.
Leirár- og Melahreppur. Þar voru sýndir 50 lirútar, 33
fullorðnir, er vógu 87.0 kg að meðaltali og 17 veturgaml-
ir, sem vógu 70.5 kg. 1 báðum aldursflokkum voru því
hrútarnir lieldur léttari en jafnaldrar þeirra í sýslunni í
heild, sjá töflu 1. Fyrstu verðlaun hlutu 13 lirútar, allir
fullorðnir, eða 26% sýndra Jirúta, og eru það hlutfalls-
lega fleiri I. verðlauna hrútar en voru þar á sýningu
1958, en ónothæfir dæmdust nú 13 hrútar, og er það
miklu óhagstæðara en var 1958. Alls ekki er viðun-
andi, að jafn margir lirútar fari í úrkast og I. verðlaun.
Beztu lirútarnir voru: Hnallur á Melaleiti frá Bakkakoti,
Völundur í Ási og Flosi í Súlunesi, allir ágætlega gerðir
og þeir tveir fyrstnefndu prýðilega holdsamir.
Skilmannalireppur. Þar voru sýndir 30 hrútar, 20 full-
orðnir, sem vógu 84.6 kg, og aðeins í Hálsahreppi voru
hrútar á þeim aldri léttari í sýslunni að þessu sinni, og
10 veturgamlir, er vógu 68.9 kg, en í Hálsa- og Strandar-
lireppi voru veturgamlir hrútar léttari, sjá töflu 1. Fyrstu
verðlaun hlutu 7 hrútar eða 23.3% sýndra hrúta, en 5
dæmdust ónothæfir. Hlutfallslega fleiri hrútar hlutu nú I.
verðlaun en 1958, og þá hlutu aðeins 2 hrútar engin verð-
laun. Beztir voru: Valdi í Gröf, sonur Nökkva á Hesti,