Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 185
HRÚTASÝNINGAR
399
I. verðlaun: Durgur og Garður 6 livor, Roði 5 og Merg-
ur og Kári 3 hvor. Fimm af sjö sonarsonum Laxa á Skúms-
stöðum lilutu I. verðlaun.
Mýrasýsla
Sýndir voru 435 hrútar í sýslunni eða nákvæmlega jafn
margir og 1958. Þeir fullorðnu, 295 að tölu, vógu 85.9 kg
að meðaltali og voru því 2.1 kg léttari en lirútar á sama
aldri í sýslunni haustið 1958, og þeir veturgömlu, 140 að
tölu, vógu 68.7 kg eða 2.3 kg minna en jafnaldrar þeirra
á síðustu sýningu. Fyrstu verðlaun lilutu nú 88 hrútar, 79
fullorðnir og 9 veturgamlir, eða 20.2% sýndra hrúta, en
1958 lilutu 25.1% hrútanna I. verölaun. Ónothæfir dæmd-
ust nú 120 hrútar, 55 fullorðnir og 65 veturgamlir, eða
27.6% sýndra hrúta, en 1958 voru 73 hrútar dæmdir ónot-
hæfir í sýslunni eða 16.8% hrúlanna. Bæði vænleiki og
flokkun hrútanna er í mikilli afturför í sýslunni, miðað
við tvær síðustu sýningarumferðir. Virðist fara saman
áhugaleysi á kynbótum og lélegt uppeldi hrútanna.
Tafla E sýnir nöfn, þunga, mál, ætterni og eigendur
allra I. verðlauna hrúta í sýslunni.
Hvítár.sí&uhreppur. Sýningin var ágætlega sótt og sýnd-
ir alls 94 hrútar, 56 fullorðnir og 38 veturgamlir. Þeir
fyrrnefndu vógu 89.3 kg og voru næst þyngstir jafnaldra
sinna í sýslunni, en þeir veturgöinlu 69.5 kg og voru í 3.—
4. sæti miðaö við þunga veturgamalla hrúta í sýslunni, en
báðir aldursflokkar voru nú mun léttari en á síðustu sýn-
ingu, og þó sér í lagi þeir veturgömlu. Fyrstu verðlaun
lilutu nú 25 lirútar fullorðnir og 5 veturgamlir eða 31.9%
sýndra hrúta, og er það fullur þriðjungur allra I. verð-
launa lirúta í sýslunni. Níu hrútar voru dæmdir ónothæf-
ir, og er því flokkun hrútanna svipuð og var á síðustu
sýningu, þó heldur lakari nú. Beztir af 2ja vetra og eldri
hrútum voru: Uggi á Gilsbakka, sem er metfé, Sámur á