Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 190
404
BÚNAÐARUIT
og aðeins 5 dæmdir ónothæfir, en nú 11 lirútar. Af þriggja
vetra og eldri hrútum, kollóttum, voru þessir beztir:
Hnöttur á Hæli frá Hesti, Eitill á Kletti, Hnoðri á Skán-
ey, háðir synir Hnattar á Hæli, og Spakur á Hrísum, son-
ur Múla þar. Af þeim hyrndu: Spakur í Skáney, Hring-
ur á Hæli og Fífill í Hrísum frá Hesti. Af 2ja v. hrútum:
Prúður í Hrísurn frá Hesti, Spakur á Kjalvararstöðum frá
Gilsbakka og Kalli í Gröf frá Samtúni. Prúður á Kletti
bar af veturgömlu hrútunum, en hann er sonur Veggs á
Hesti og Hnotu 500 þar. Prúður er mikill í málum, lief-
ur ágæta fótstöðu og afburða bak- og malahold, en hef-
ur varla nógu fagurt liöfuð og aðeins of lin læri. Marg-
ir beztu hrútarnir í hreppnum eru ættaðir frá Hesti að
ineira eða minna leyli, eins og sést af framanskráðu.
Lundarreykjadalshreppur. Þar voru sýndir 42 hrútar,
30 fullorðnir, sem vógu 90.4 kg að meðaltali og voru því
1.4 kg þyngri en sýslumeðaltalið, og 12 veturgamlir, er
vógu 72.3 kg og voru því aðeins þyngri en jafnaldrar
þeirra í sýslunni í lieild. En báðir aldursflokkar voru nú
til muna rýrari en þeir voru 1958. Fyrstu verðlaun lilutu
15 hrútar, þar af einn veturgamall, eða 35.7% sýndra
hrúta, og er það lil muna óhagstæðara lilutfall en var
1958, en þá hlutu 48% lirútanna þá viðurkenningu. Eftir-
taldir hrútar voru bezlir: Af 3ja vetra og eldri hrútum:
Glæsir á Krossi frá Gilsbakka, Gauti á Skálpastöðum og
Gráni á Oddsstöðum. Af 2ja v. hrútum: Hringur á Odds-
stöðum, Styr á Skálpastöðum, báðir frá Hesti og Dvergur
á Kistufelli. Hnoðri á Krossi, ættaður frá Gilsbakka, var
eini veturgamli hrúturinn, sem hlaut I. verðlaun. Allir
beztu hrútarnir voru aðfengnir frá tveimur bæjum, Gils-
bakka og Hesti.
Skorradalshreppur. Þar voru sýndir 45 hrútar, 33 full-
orðnir og 12 veturgamlir. Þeir fullorðnu voru jafnvæn-
ir jafnöldrum sínum í Lundarreykjadal, en vetur-
gömlu hrútarnir í Skorradal voru 4 kg þyngri en þar,
sjá töflu 1. Fyrstu verðlaun lilutu 18 hrútar eða 40%, og