Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 175
HRÚTASÝNINGAR 389
I. verðlaun A. Hjörtur í Höfnum dæmdist í I. verð-
laun B.
Höfðahreppur. Þar voru sýndir 46 lirútar, 23 tveggja
vetra og eldri og 23 veturgamlir, þeir voru nokkru léttari
en lirútar í sýslunni í heild, einkum þeir veturgömlu, og
mun léttari en hrútar í hreppnum 1958. Fyrstu verðlaun
hlutu 15 hrútar fullorðnir og 5 veturgamlir eða 43.5%
sýndra hrúta, og er það svipað lilutfall og var á síðustu
sýningu. Engin verðlaun hlutu 5 hrútar veturgamlir. Á
héraðssýningu voru valdir eftirtaldir hrútar: Prúður
Steingríms Jónssonar, Skagaströnd, sem hlaut I. heiðurs-
verðlaun og var 5. bezti hrútur í þeim aldursflokki, Prúð-
ur Jóns Jónssonar og Aspar Jóhannesar Hinrikssonar,
Skagaströnd, hlutu I. verðlaun B.
Vindhœlishreppur. Sýndir voru 43 hrútar, 32 fullorðnir,
sem vógu 91.0 kg voru því um 2 kg þyngri en jafnaldrar
þeirra í sýshmni í heihl, og 11 veturgamlir, sem vógu 72.6
kg og voru því aðeins undir sýslumeðaltali veturgamalla
hrúta, sjá töflu 1. Hrútar í lireppnum eru nú mun vænni
en fyrir 4 árum, og flokkun þeirra betri. Fyrstu verðlaun
hlutu 15 hrútar eða 34.9% sýndra lirúta, en 6 dæmdust
ónothæfir. Á héraðssýninguna voru valdir eftirtaldir hrút-
ar: Þyrill Þorvalds á Núpi, Spakur Hafsteins á Njálsstöð-
um, Fífill á Hafursstöðum og Möttull á Syðra-Hóli, sem
allir hlutu I. verðlaun A, og Steini á Syðra-Hóli, er hlaut
1. verðlaun B.
Engihlí&arhreppur. Sýndir voru 63 lirútar, 50 fullorðnir
og 13 veturgamlir, þeir síðarnefndu voru 5.1 kg léttari en
jafnaldrar þeirra í sýslunni í lieild, þeir fullorðnu 0.5 kg
undir sýslumeðaltali, og er það minni vænleiki en var
fyrir fjórum árum. Fyrstu verðlaun lilutu 23 lirútar eða
36.5%, og er það mun betri flokkun en var á síðustu sýn-
ingu, þá hlutu 20% sýndra hrúta þá viðurkenningu. Á
héraðssýningu voru valdir eftirtaldir hrútar: Hnoðri Sf.
Enghlíðinga og Durgur Einars á Móbergi, sem báðir hlutu
1. heiðursverðlaun og voru 3. og 8. í röð hrúta í þeiin ald-