Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 199
HÉUAÐSSÝNINCAIt Á HRÚTUM
413
Eftir að dómnefnd liafði lokið störfum, setti Egill
Bjarnason, ráðunautur, sýninguna. Að því loknu lýsti dr.
Halldór Pálsson, ráðunautur, dómum. Úrslit dómanna
urðu þau, að I. lieiðursverðlaun lilutu 18 hrútar, I. verð-
laun A 24 lirútar og 1. verðlaun B 16 lirútar.
Heiðursverðlaunalirútunum var raðað eftir gæðum í
tveimur aldursflokkum, )). e. veturgömlum sér, og 2ja
vetra og eldri sér. Hrútunum, sem hlutu I. verðlaun A og
B, var ekki raðað. Valdir voru ])rír beztu hrútar sýningar-
innar án tillits til aldurs.
Beztur af veturgömlu hrútunum var dæmdur Drumbur
á Reykjum í Lýtingsstaðahreppi. Hann var jafnframt
dæmdur þriðji hezti hrútur sýningarinnar. Drumbur er
fæddur á Reykjum, sonur Draupnis frá Brekku í Seylu-
hreppi, ss. Draupnis í Ási, Hrunamannalireppi. Drumbur
er livítur, liyrndur, lágfættur, fínbyggður, þykkvaxinn
með ágæta holdfyllingu, sérstaklega á mölum og í lærum.
Annar bezti veturgamli hrúturinn var Garpur í Eyhildar-
holti. Hann er livítur, hyrndur, sonur Kveiks í Oddgeirs-
liólum. Garpur er lágfættur, klettþungur, með góða rifja-
hvelfingu og útlögumikla bringu, mikil og þétt liold á
baki og mölum, en skortir aðeins á fyllingu í lærum.
Bezti fullorðni lirúturinn, og jafnframt bezti hrútur
sýningarinnar, var dæmdur Durgur í Brekku, Seylu-
lireppi. Hann er livítur, hyrndur, sonur Durgs frá Fjalli
á Skeiðum. Durgur er með fremur stutt, svert höfuð,
svera, gleitt setta fætur, fremur langan, sívalan bol, útlögu-
góðan hrjóstkassa, breiða, framstæða bringu, mikil og
þétt hold á liaki, mölum og í lærum. Ullin mikil og góð.
Durgur er vel gerð og fögur kind, en í háfættara lagi.
Annar bezli fullorðni lirúturinn, og jafnframt annar bezti
Jirútur sýningarinnar, var Hnykill á Ríp í Rípurlireppi.
Hann er livítur, kollóttur, lieimaalinn, sonur Spaks. Hnyk-
ill er afburða vel gerð kind, fremur lágfættur, jafn og
þykkvaxinn, með framúrskarandi vöðvafyllingu og þétt
liold, en ullin í grófara lagi. Þriðji bezti fullorðni lirút-