Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 205
HÉRAÐSSÝNINGAR Á HRÚTUM
419
Annar bezti hrúturinn var Spakur frá Holti, Torfalækj-
arhreppi. Hann er kollóttur, hreinn Vestfirðingur. Spak-
ur er í föðurætt út af Koll á Ásbrekku, en í móðurætt út
af Gulkoll í Holti frá Sunndal.
En þeir Kollur og Gulkollur voru fyrst lengi eftir fjár-
skiptin meðal allra álitlegustu hrúta í sýslunni vestan
Blöndu, og miklar kynbótakindur. Sauðfjárræktarfélag
Áslirepps keypti Spak á sýningunni.
Þriðji bezti hrúturinn á sýningunni var Roði í Hvammi.
Fjórði í röð fullorðinna lirúta var Logi á Steiná. Þeir Roði
og Logi eru synir Roða á Stóra-Ármóti í Árnessýslu. Þeir
eru afburða glæsilegir og vöktu mikla og verðskuldaða
atliygli á sýningunni. Þeir hlutu báðir I. verðlaun fyrir
afkvæmi.
1 þriðja, 8. og 10. sæti fullorðinna hrúta komu synir
Durgs frá Fjalli á Skeiðum, allir mjög vel gerðir og með
liið einkennandi mikla og þétta holdafar Durgsafkvæma. 1
5. sæti var Prúður frá Skagaströnd, lágfættur, sniár, saman-
rekinn holdabnaus. Hann er af Asparvíkur- og Reykjar-
fjarðarættum. 1 sjötta og níunda sæti Bliki frá Holti og
Smári frá Akri, báðir af Múlastofni og miklum kostum
búnir. I sjöunda sæti Hringur, Haukagili, sonur Draupn-
is, Árnessýslu, lágfættur, þungur, yfirlætislítil kostakind.
1 ellefta sæti Kubbur, Helgavatni, sonur Litla á Læk í
Árnessýslu. Kubbur er glæsilegur, þungur, með afburða
hold á baki, möluin og í lærum.
Annar í röð veturgamalla hrúta var Snúður í Hnausum,
eini hyrndi Vestfirðingurinn, er hlaut heiðursverðlaun.
Hann var jafnframt dæmdur bezti lirúturinn í Sveinsstaða-
hreppi, og blaut Jiví eigandi hans, Leifur Sveinbjörns-
son, hinn forkunnar fagra verðlaunagrip, eftir Ríkarð
Jónsson, er Sauðfjárræktarfélag Sveinsstaðabrepps hefur
gefið sem farandgrip fyrir beztan hrút á sýningum í
hreppnum. Snúður er sonur Hnykils X 10 Sauðfjárrækt-
arfélags Hrútfirðinga.
Varla er ástæða til að fara mörgum orðum um fleiri