Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 213
HÉRAÐSSÝNINGAI! á hrútum
427
Hyrndir, 2ja v.: Eigandi:
Kuggur......... Alexander Stefánsson, Ólafsvík.
Hyrndir, 1 v.:
Botni.......... Rósinkar Guðmundsson, Höfða, Eyjahreppi.
Roði........... Narfi Kristjánsson, Hoftúnum, Staðarsveit.
Prúður......... Þráinn Bjarnason, Hlíðarholti, Staðarsvcit.
Máni .......... Kristgeir Kristinsson, FeRi, Breiðuvíkurhreppi.
Móði á Ytra-Leiti var dæmdur bezti kollótti hrúturinn
og jafnframt bezti lirútur á sýningunni. Varðveitir því Jó-
hannes Hallsson á Ytra-Leiti lieiðursverðlaunaskjöld bún-
aðarsambandsins næstu tvö árin.
Móði er 3ja vetra, sonur Dvergs frá Innra-Leiti, sem
tvívegis Iilaut beiðursverðlaunaskjöld sambandsins. Hann
er fölgulur á liaus og fótum, með sæmilega, en fulllitla
ull. Hann er frábærlega vel gerður, með stutta, sterka og
gleitt setta fætur, bringu- og brjóstkassabygging ágæt, bak-
ið breitt og boldgróið, mala- og lærahold svo varla verð-
ur á betra kosið. Móði er enn ekki mikið reyndur, en sú
reynsla, sem fengin er, spáir góðu. Undan bonum voru
sýndir ]>rír hrútar, og lilutu þeir allir fyrstu verðlaun.
Jökull í Hoftúnum var dæmdur bezti byrndi hrúturinn
og jafnframt annar bezti lirútur sýningarinnar. Hann er
með afbrigðum vænn, Iiefur vel bvíta og góða ull og ágætt
vaxtarlag.
Snigill á Hofsstöðum í Hfsv. var beztur af 2ja v. koll-
óttum og þriðji bezti brútur sýningarinnar. Hann er
svipfríður, liefur ágæta ull, er prýðilega gerður og ber
glögg einkenni ræktunar.
Fjórði bezti hrúturinn var Dvergur frá Innra-Leiti, sem
á tveimur síðustu héraðssýningum var dæmdur bezti brút-
urinn. Hann er nú fluttur í aðra sveit, að Hlíð í Kolbeins-
staðabreppi, og hefur þegar markað sín spor á kollótta
hrútastofninn í breppnum.
Fimmti bezti hrúturinn á sýningunni var dæmdur Snig-
ill í Litla-Langadal. Hann er lágfættur, holdgóður og
jafnvaxinn.