Búnaðarrit - 01.06.1963, Blaðsíða 178
392
BUNABAK KIT
prýðilegir einstaklingar. Kubbur á Helgavatni lilaut einn-
ig I. heiðursverðlaun og slóð 11. í röð fullorðinna lirúta í
þeim verðlaunaflokki, Ljómi Sigþórs í Brekkukoti og
Dofri Ólafs á Sveinsstöðum lilutu báðir I. verðlaun A, en
Valur Þorbjörns í Brekkukoti I. verðlaun B.
Áshreppur. Sýningin var ágætlega sótt og sýndir alls
115 brútar, 77 fullorðnir, sem vógu 90.8 kg og voru því
2.3 kg þyngri en jafnaldrar þeirra í lireppnum voru á
síðustu sýningu og 1.6 kg þyngri en lirútar á sama aldri
í sýslunni í beild á þessu liausti. Sýndir voru 38 lirvitar
veturgamlir, sem vógu 78.2 kg að meðaltali og voru því
4.8 kg þyngri en jafnaldrar þeirra í sýslunni, aðeins
Sveinsstaðalireppur hafði þyngri brúta í þessum aldurs-
flokki. Hefur orðið mikil framför á veturgömlum hrút-
um í hreppnum frá síðustu sýningu og jafnvaxandi þróun
frá 1954 til þessa árs. Fyrstu verðlaun hlutu 47 hrútar
fxillorðnir eða 61.0% hrúta í þeini aldursflokki, og 21
veturgamall, eða 55.3%. Af öllum sýndum hrútum í
hreppnum blutu 68 I. verðlaun eða 59.1% hrútanna, en
aðeins 6 dæmdust ónothæfir. Þetta er mjög glæsilegur
árangur og bezta niðurstaða á hreppasýningu í sýslunni á
þessu liausti, og þótt víðar væri leitað. Árangur bænda í
Áslireppi í fjárrækt síðasta áratuginn sýnir glögglega,
hversu langt má ná, ef sainan fer örugg leiðbeiningarþjón-
usta, einlægur vilji og almennur ræktunaráhugi jafnhliða
góðri umhirðu og fóðrun fjárins til fyllstu afurða. Því að-
eins má búast við fullri svörun af kynbótastarfinu, að
enginn einn þáttur þess sé svo vanmetinn, að liann geti
dulið allan árangur ræktunarinnar í lieild. Eftirtaldir 8
hrútar voru valdir á héraðssýningu: Roði Reynis í
Hvammi, Hringur á Haukagili, Kubbur í Ási og Haukur
í Grímstungu, sem allir hlutu I. lieiðursverðlaun, Roði
var 2. í röð lieiðursverðlauna hrúta í sínum aldursflokki
og dæmdist jafnframt þriðji bezti hrúturinn á liéraðssýn-
ingunni, enda metfé að vænleika og gerð. Hringur var 7.,
Kubbur 12. og Haukur 6. í röð veturgamalla lirúta, I-