Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 17
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
11
grundvöll ræktunarsambanda og lög um ræktunar- og
húsagerðarsamþykktir í sveitum. Nefndin liefur lialdið
nokkra fundi, safnað gögnum um hag og rekstur ræktunar-
sambandanna og skilað áliti, sem lagt verður fyrir Búnað-
arþing 1974.
Nefnd til að endurskoða lög og reglur urn bœndaskóla.
Snemma á árinu harst Búnaðarfélagi Islands hréf frá
Landbúnaðarráðuneytinu, þar sem skýrt var frá því, að
ráðuneytið liefði ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða
lög og reglur um bændaskóla og almennt búnaðarnám í
landinu, samkvæmt tillögu Búnaðarþings 1972, og óskaði
eftir, að Búnaðarfélag Islands tilnefndi 1 mann í þessa
nefnd. Stjórnin tilnefndi Hjört E. Þórarinsson í nefndina.
Nefndin liefur enn ekki lokið störfum.
Hópslysalryggingarnefnd. I henni áttu sæti þeir Sigurð-
ur J. Líndal og Árni Jónasson, sjá Til Búnaðarþings 1973,
hls. 12. Nefndin skilaði áliti 1. marz 1973. Yar það tekið
fyrir á fundi stjórnar Búnaðarfélags Islands liinn 26. marz
og gerð um það eftirfarandi hókun:
„Tekin fyrir álitsgerð þeirra Sigurðar J. Líndal og Árna
Jónassonar, dags. 1. marz þ. á., um tillögur, sem þeim var
falið að gera í sambandi við tryggingarmál bænda. Stjórn-
in ákvéður að senda álitsgerðina til Stéttarsambands
bænda og spyrjast fyrir um, livort það fallist á þá megin-
tillögu þeirra Sigurðar og Árna, að Stéttarsambandið og
Búnaðarfélagið geri uppkast að rammasamningi við þau
tryggingarfélög, sem liafa áhuga á málinu.“
Með bréfi hinn 6. júní 1973 fellst stjóm Stéttarsam-
hands bænda á tillögur Búnaðarfélags Islands í framan-
skráðri bókun.
Á fundi stjórnar Búnaðarfélags Islands hinn 13. júní
var gerð um málið eftirfarandi bókun:
„Tekið fyrir bréf Stéttarsambands bænda, dags. 6. júní
þ. á., með svari við fyrirspurn Búnaðarfélags Islands frá
27. marz þ. á. um tilnefningu manna til að gera ramma-
samning um lióptryggingu bænda, samkv. álitsgerð Árna