Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 88
82
BÚNAÐARRIT
sumum tilfellum. A3 loknum hreppasýningum voru
lialdnar fjórar liéraðssýningar á sauðfé, í Norður-Þingeyj-
arsýslu, Múlasýslum, Austur-Skaftafellssýslu og Rangár-
vallasýslu. Sveinn var fulltrúi Búnaðarfélags Islands á liér-
aðssýningu í Norður-Þingeyjarsýslu, ég í Múlasýslum og
Austur-Skaftafellssýslu og Leifur Kr. Jóliannesson, ráðu-
nautur, í Rangárvallasýslu. Um sýningar verður nánar
skrifað síðar.
SaaSfjársœðingar. Þrjár sæðingarstöðvar voru starf-
ræktar á árinu, að Laugardælum, Hesti og Lundi. Á síð-
ustu stundu þrengdi þó sauðfjársjúkdómanefnd, að fyrir-
lögðu ráði yfirdýralæknis, all mjög sæðingarsvæði stöðv-
anna. Ef áframhald verður á slíkum takmörkunum, er
kippt hurt rekstrargrundvelli fyrir starfsemi stöðvanna, og
er þá illa farið. Gegnir furðu, hversu strangar reglur og
margvísleg bönn ná til sauðfjársæðinga, á sama tíma og
nautgripasæðingar eru leyfðar um land allt, og varnargirð-
ingar víða í miklum ólestri. Það verður ekki hjá því komizt
á þessu ári, að sauðf jársæðingarmálin verði ýtarlega rædd
og framkvæmd af skynsemi. I Laugardælum voru notaðir
11 lirútar, 7 liyrndir og 4 kollóttir. Á árinu komu fjórir
hrútar inn á stöðina, tveir hyrndir af Suðurlandi og tveir
kollótlir, annar þeirra úr Árneshreppi á Ströndum, hinn
frá Eiði í Eyrarsveit á Snæfellsnesi.
Að Ilesti voru 6 hrútar, 3 liyrndir og 3 kollóttir, 2 koll-
arnir úr Strandasýslu, hinir allir frá Hesti. Á Lundi við
Akureyri voru nú 7 hrútar, 2 hyrndir og 5 kollóttir. Fimm
hrútanna komu inn á árinu, 3 kollar úr Strandasýslu og
tveir hyrndir iir Mýrahreppi, Austur-Skaftafellssýslu.
Eins og áður er getið, var sæðingarsvæði stöðvanna mun
þrengra en undanfarin ár, á Suðurlandi voru ekki leyfð-
ar sæðingar austan Jökulsár á Sólheimasandi, á Vestur-
landi aðeins leyfðar sæðingar í Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslu og þrem hreppum á Snæfellsnesi, Skógarstrandar-,
IColbeinsstaða- og Eyjarhreppi, og mjög þrengt um sæðing-
ar frá Lundi í Suður-Þingeyjarsýslu austan Skjálfanda-